Læknablaðið - 15.11.1999, Blaðsíða 64
908
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
50 manna fyrirtæki
Læknablaðið ætlar að fjalla
um þennan nýja starfsvett-
vang lækna í næstu blöðum en
fyrst tókum við hús á Helga
Kristbjarnarsyni geðlækni
og forstjóra Flögu hf. Starf-
semi og vöxtur þess fyrirtækis
er afskaplega gott dæmi um
það hvernig ný tækni sprettur
upp úr starfi læknisins.
Flaga hf. er til húsa í Vest-
urhlíð 7, rétt ofan við kirkju-
garðinn í Fossvogi, en verði
vaxtarhraði fyrirtækisins
áfram sá sami og verið hefur
blasir það við að huga þurfi að
nýju og stærra húsnæði. Fyrir-
tækið sem stofnað var árið
1992 hefur tvöfaldast að um-
fangi á hverju ári frá stofnun
þess og hefur nú 50 manns í
vinnu. Að sögn Helga er eins
víst að þeir verði farnir að
nálgast hundraðið á næsta ári
því ýmsar nýjungar eru að
komast á framleiðslustig.
Helsta framleiðsluvara fyr-
irtækisins er Embla en svo
heitir lítið og handhægt tæki
sem notað er við svefnrann-
sóknir en nýtist reyndar ekki
síður við ýmsar aðrar rann-
sóknir. Því fylgir hugbúnaður-
inn Somnologica en í samein-
ingu geta tækið og hugbúnað-
urinn fylgst með og skráð
margskonar rafboð í heila og
taugakerfi líkamans. Flaga hf.
framleiðir þetta tæki undir
eigin nafni en hefur einnig
samið við bandanska fyrir-
tækið ResMed sem annast
dreifingu og markaðssetningu
í Bandaríkjunum og víðar.
Auk framleiðslu og sam-
setningar tækjanna starfrækir
Flaga þróunardeild sem vinn-
ur að því að þróa bæði hug-
búnað og vélbúnað. Til dæmis
sýndi Helgi mér tilraunaút-
færslu af mælitæki sem kemst
fyrir í brjóstvasa sjúklingsins.
Þjónustudeild fyrirtækisins er
líka mjög öflug.
Fyrirtækið tvöfaldast á
milli ára
Eg spurði Helga hvernig
þetta ævintýri hefði byrjað.
„Við stofnuðum fyrirtækið
haustið 1992, ég og tengda-
sonur minn, Rögnvaldur Sæ-
mundsson rafmagnsverkfræð-
ingur. Við höfðum þá verið að
smíða tæki til svefnrannsókna
á geðdeild Landspítalans í litl-
um mæli til eigin nota. Við
ákváðum að stofna fyrirtæki
og reyna að búa til tæki sem
gæti með stafrænum hætti gert
mælingar á heilariti og öðru
því sem okkur vantaði.
Ég hafði reyndar lært tölu-
vert í rafeindafræði við Nób-
elsstofnunina í Stokkhólmi
þar sem ég stundaði fram-
haldsnám í taugalífeðlisfræði.
Þar smíðuðum við öll okkar
tæki sjálfir svo ég vissi hvað
var hægt að gera og að þau
tæki sem voru á markaðnum
stóðu oft langt að baki því
sem þekking á sviði rafeinda-
tækni leyfir.
Við byrjuðum þrír, Björg-
vin Guðmundsson var þriðji
maðurinn og vann nokkur
verkefni fyrir okkur. í fyrstu
var þetta tómstundastarf því
það var ekki fyrr en í maí
1994 sem við réðum fyrsta
starfsmanninn í fullt starf. Þá
réðum við reyndar nokkra
starfsmenn og tókum á leigu
húsnæði. Fyrsta framleiðslu-
varan var tilbúin til fram-
leiðslu í árslok 1995 en það
var Embla. Síðan hefur þetta
vaxið mjög ört og margt drifið
á dagana. Við höfurn notið
þess að fá til starfa hjá okkur
unga hæfileikamenn á sviði
tölvutækni og verkfræði,
kunningja Rögnvaldar sem
hann treysti og vissi að voru
færir. Þeir hafa byggt þetta allt
upp.“
Nauðsynlegt að hugsa
stórt
- Ert þú þá eini læknirinn í
fyrirtækinu?
„Já, læknisfræðiþekkingin
kemur upphaflega frá mér en
síðan höfum við fengið mikil
viðbrögð og ábendingar frá
viðskiptavinum okkar og það
eru í æ meira mæli þær sem
eru drifkraftur tækniþróunar-
innar. Við höfum lagt mikið
upp úr því að hafa gott sam-
starf við notendur tækjanna og
það er lykillinn að velgengni
fyrirtækisins. Þeir hafa talað
vel um tækin okkar og mælt
með þeim við aðra kollega.
Þessi áhersla á góða þjónustu
við notendur og að við leggj-
um mikið á okkur til að leysa
vandamál þeirra hefur skilað
sér. Við höfum fyrir vikið
eignast bandamenn fyrir lífs-
tíð.“
- Embla nýtist fyrst og
fremst við svefnrannsóknir
eða hvað?
„Já, en reyndar er hægt að
nota það við allar mögulegar
rannsóknir, ekki síst við heila-
rit. Bandaríska fyrirtækið
Nicolet sem við erum í sam-
starfi við markaðssetur það
eingöngu sem tæki til að gera
heilarit, til dæmis við rann-
sóknir á flogaveiku fólki. En
við höfum frá upphafi reynt að
hafa tækið sveigjanlegt svo
hægt sé að nota það til að
mæla merki frá öllum gerðum
skynjara sem notaðir eru við
lífeðlisfræðilegar rannsóknir.
Það getur numið merki sem
eru allt frá einum milljónasta
hluta úr volti upp í nokkur volt
að styrkleika.
Við erum að þróa ýmsar