Læknablaðið - 15.11.1999, Page 67
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
909
Flaga ehf. er til húsa íVesturhlíð 7 í Reykjavík. Þar er verið að stœkka
húsnœðið en óvíst er live lengi það dugir því starfsmannafjöldinn
hefur tvöfaldast á ári og ekki er séð fyrir endann á þeim vexti.
nýjungar sem við munum setja
á markað á næsta ári, bæði ný
tæki og útfærslur á Emblu og
nýjar útgáfur af hugbúnaði.“
- Hafa ekki einhverjir vaxt-
arverkir fylgt þessum öra
vexti?
„Jú, það er skrítið að reka
svona fyrirtæki því þegar
vöxturinn er svona hraður þá
þarf öll áætlanagerð til lengri
tíma að vera mjög stórhuga.
En það er ekkert annað að
gera en að hugsa þannig.“
Olíkt læknisstarfínu
- En þegar fyrirtækið er
komið á þennan rekspöl, hvert
er þá hlutverk þitt? Ertu ekki
fyrst og fremst að starfa að
rekstri og markaðsmálum?
„Jú, að vissu leyti, en í
þessu starfi er það mikill kost-
ur að vera læknir og geta
hugsað eftir sömu brautum og
viðskiptavinirnir. Læknis-
reynslan nýtist líka mjög vel
við hönnunarstarfið. A hinn
bóginn er þátttakan í við-
skiptalífmu afskaplega ólík
læknisstarfinu. Ég þurfti að
læra margt nýtt og breyta
ýmsu í hugsunarhætti mínum.
Kannski verð ég aldrei mjög
góður í því.“
- Nú starfið þið á hátækni-
sviði þar sem ætla má að stóru
risamir í tölvubransanum ráði
lögum og lofum. Eiga menn
hér uppi á íslandi einhverja
möguleika á að standast þeim
snúning?
„Já, við getum gert góða
hluti á afmörkuðum sviðum ef
við gætum þess að setja okkur
skýr markmið. Reyndar er ég
efins um að svipað ævintýri
og okkar gæti gerst núna því
allar kröfur um gæðakerfi og
vottanir á fyrirtæki sem selja
heilbrigðistækni hafa verið
hertar til muna. Það er því
orðið erfiðara fyrir lítil fyrir-
tæki að hasla sér völl. En það
er hægt ef maður veit ná-
kvæmlega hvað maður ætlar
að gera. Það eru víða göt á
markaðnum því margt af því
sem verið er að bjóða læknum
upp á er óttalegt drasl og fok-
dýrt.“
- Sérðu fyrir þér að heil-
brigðistækni geti orðið um-
talsverður starfsvettvangur
fyrir lækna?
„Ég hugsa að fæstir læknar
vilji fara þá leið sem ég valdi.
Flestum læknum er svo óskap-
lega annt um þessi mörgu ár
sem þeir hafa eytt í náinið sitt
að þeim finnst erfitt að hugsa
til þess að starfa við eitthvað
annað en lækningar. Hins veg-
ar held ég að í framtíðinni
verði ekki þörf á öllum þeim
til þess að stunda lækningar
sem sækjast eftir því að læra
læknisfræði. Tækniþróunin,
útrýming sjúkdóma og fleiri
þættir munu draga úr þörfinni
fyrir menn sem stunda hefð-
bundnar lækningar. En það
verður áfram þörf fyrir menn
sem kunna læknisfræði til að
stunda rannsóknir og þróa
þekkinguna," sagði Helgi
Kristbjarnarson.
-ÞH