Læknablaðið - 15.11.1999, Blaðsíða 70
912
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Afgreiðsla Tölvunefndar á beiðni
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins
um aðgang fímm starfsmanna Islenskrar
erfðagreiningar að 30 sjúkraskrám
á Sjúkrahúsi Reykjavíkur
Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið
Davíð Gunnarsson
Laugavegi 116
150 Reykjavík
7. september 1999
Tölvunefnd hefur borist er-
indi yðar, f.h. nefndar um
veitingu leyfis til að reka
gagnagrunn á heilbrigðissviði
skv. lögum nr. 139/1998. Þar
kemur fram að nú sé unnið að
undirbúningi leyfisveitingar
og könnunarviðræður eigi sér
stað við íslenska erfðagrein-
ingu ehf. (ÍE). Af hálfu ÍE hef-
ur komið fram að fyrirtækið
geti ekki mótað óskir sínar
varðandi söfnun og skráningu
upplýsinga nema gera fyrst
könnun á eðli og umfangi
sjúkraskráa. Hefur nefnd um
veitingu rekstarleyfis fallist á
nauðsyn þess og því ákveðið
að óska heimildar Tölvu-
nefndar til slíks aðgangs. I
beiðninni segir m.a.:
„Oskað er eftir aðgangi að
30 sjúkraskrám á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur, bæði handritum
og tölvuskráðum sjúkraskrám,
þannig að unnt verði að átta
sig á þeim upplýsingum sem
þær hafa að geyma og mögu-
leikum á framtíðartengingum
(skv. skilyrðum tölvunefndar
þegar þar að kemur) við
sjúkraskrár sömu einstaklinga
á heilsugæslustöðvum og á
stofum sjálfstætt starfandi
heilbrigðisstarfsmanna. Æski-
legt er að skoðunin taki til
sjúkraskráa frá sem flestum
mismunandi deildum sjúkra-
hússins. Skoðunin færi ein-
göngu fram á sjúkraskrár-
geymslum Sjúkrahúss
Reykjavíkur og ekki yrðu tek-
in afrit af sjúkraskrám. Sótt er
um leyfi til aðgangs fyrireftir-
talda 5 starfsmenn Islenskrar
erfðagreiningar ehf.: Sigurð
Björnsson, verkefnisstjóra,
Valgerði Gunnarsdóttur,
sjúkraþjálfara, Ingibjörgu
Þórhallsdóttur, hjúkrunar-
fræðing, Kristján Erlendsson,
lækni og Hákon Guðbjarts-
son, yfirmann upplýsinga- og
tæknimála."
Tölvunefnd ræddi erindið á
fundi sínum þann 3. þ.m. og
ákvað, með vísun til 2. mgr. 5.
gr. laga nr. 121/1989 um
skráningu og meðferð per-
sónuupplýsinga, að veita um-
beðið leyfí. Leyfið er bundið
þeim skilmálum að umræddar
sjúkraskrár verði valdar af
handahófi, að þær verði að-
eins skoðaðar innan veggja
sjúkrahússins og engin afrit
tekin, að skoðunin fari fram
undir eftirliti læknis sem til-
nefndur verði af lækningafor-
stjóra og að Sigurður Björns-
son, Valgerður Gunnarsdóttir,
Ingibjörg Þórhallsdóttir,
Kristján Erlendsson og Hákon
Guðbjartsson, undirriti fyrst
sérstök þagnarheit sem send
verði Tölvunefnd.
F.h. Tölvunefndar
e.u.
Sigrún Jóhannesdóttir
framkvæmdastjóri
Nýskipan Tölvunefndar
Þann 6. september 1999 gaf dóms- og kirkjumálaráðherra
út fréttatilkynningu um nýskipan Tölvunefndar. Hún er nú
þannig skipuð: formaður Páll Hreinsson dósent við lagadeild
Háskóla Islands, varaformaður Jón Ólafsson hrl., aðrir
nefndarmenn Valtýr Sigurðsson héraðsdómari, Guðbjörg
Sigurðardóttir tölvunarfræðingur og Haraldur Briem
læknir. Varamenn eru Gunnar Thoroddsen lögfræðingur,
Jón Thors skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu, Erla S.
Arnadóttir hrl., Óskar B. Hauksson verkfræðingur og Vil-
helmína Haraldsdóttir læknir. Framkvæmdastjóri nefndar-
innar er Sigrún Jóhannesdóttir deildarstjóri í dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu.
Nýr í nefndinni er Gunnar Thoroddsen.