Læknablaðið - 15.11.1999, Side 87
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
927
eftir aldurshópum 1991-1997.
en þar er hlutfall bólusettra
innan við 10% (mynd 3). Hér
er því verk að vinna. Mikil-
vægt ar að læknar skrái og til-
kynni allar bólusetningar gegn
pneumókokkasýkingum til
sóttvarnalæknis.
Fyrirhugaðar eru rannsókn-
ir á árangi bólusetninga hér á
landi sem sóttvarnalæknir og
sýklafræðideild Landspítalans
munu standa að í samvinnu
við fleiri aðila.
HEIMILDIR
1. Briem H. Gagnsemi bólusetningar
gegn lungnabólgubakteríum (Strepto-
coccus pneumoniae). Læknablaðið
1991; 77: 361-2.
2. CDC. Prevention of pneumococcal
disease: recommendations of the Ad-
visory Committee on Immunization
Practices (ACIP). MMWR 1997; 46:
l-24.(no.RR-9)
3. Sisk JE, Moskowitz AJ, Whang W,
et al. Cost-effectiveness of vaccina-
tion against pneumococcal bacter-
emia among elderly people. JAMA
1997; 278: 1333-9.
Ársþing Skurðlæknafélags íslands og
Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags
íslands árið 2000
verður haldið á Hótel Sögu fimmtudaginn 6. og föstudaginn 7. apríl. Ágrip erinda berist fyrir
1. febrúar 2000. Þau ágrip sem samþykkt verða af vísindanefnd félaganna til flutnings á
þinginu verða birt í Læknablaðinu. Agripin skulu send með tölvupósti sem viðhengi til
Gunnhildar Jóhannsdóttur, sjá netfang að neðan. Ágrip sem ekki er unnt að senda þannig
skulu send á disklingi til ritara þingsins.
Við lok þingsins verða verðlaun afhent fyrir bestu erindin eins og verið hefur.
• Eftirtalin atriði komi fram í þeirri röð sem hér segir: Titill ágrips, nöfn og vinnustaður
höfunda, inngangur, efniviður og aðferðir, niðurstöður og ályktanir.
• Nafn flytjanda skal feitletrað.
• Hámarkslengd ágripa er 1800 letureiningar (characters).
• Höfundar skulu láta þess skýrt getið hvaða útbúnað í fundarsal þeir óska eftir að nota
við flutning erindisins.
Nánari upplýsingar um þingið veita:
Hannes Petersen Sjúkrahúsi Reykjavíkur
Eiríkur Jónsson Sjúkrahúsi Reykjavíkur
Helgi H. Sigurðsson Landspítalanum
Þorsteinn Jóhannesson Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði
Aðalbjörn Þorsteinsson Landspítalanum
Felix Valsson Landspítalanum
Sveinn Geir Einarsson St.Jósefsspítala, Hfj.
Einar Einarsson Lækningu, Lágmúla
Ritari þingsins er Gunnhildur Jóhannsdóttir, handlækningadeild Landspítalans, sími: 560
1330, bréfsími: 560 1329, netfang: gunnhild@rsp.is