Læknablaðið - 15.11.1999, Qupperneq 88
928
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Vísindasjóður Wyeth Lederle
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Vísindasjóði Wyeth Lederle.
Umsóknir skulu berast til skrifstofu Austurbakka hf, Borgartúni 20 á þar til gerðum eyðu-
blöðum eigi síðar en 19. nóvember 1999. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Austurbakka
hf. Borgartúni 20, sími: 563 4000, netfang: austurba@ipa.austurbakki.is. Úthlutun fer fram
þann 17. desember.
Eftirfarandi eru mikilvægar upplýsingar fyrir væntanlega umsækjendur:
- Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglur sjóðsins sem hægt er að nálgast á skrif-
stofu Austurbakka hf.
- Styrkir úr sjóðnum eru ætlaðir til rannsókna á sviði meltingarsjúkdóma.
- Samtals verður einni miljón króna úthlutað úr sjóðnum. Að þessu sinni er gert ráð fyrir að
veita einn stóran styrk, 400-500 þúsund krónur og tvo til þrjá minni, 200-300 þúsund
krónur.
Stjórn sjóðsins skipa: Kjartan Örvar og Ásgeir Böðvarsson tilnefndir af Félagi sérfræð-
inga í meltingarsjúkdómum og Sigrún Elsa Smáradóttir fulltrúi Wyeth Lederle sem jafn-
framt er formaður nefndarinnar.
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Strandgötu 31,735 Eskifjörður, sími 470 1404, bréfsími 470 1409
Austurland - þar sem tækifærin bjóðast!
Heilbrigðisstofnun Austurlands er ný stofnun, þar sem sjúkrahús og heilsugæslustöðvar á Austur-
landi, allt frá Vopnafirði til Djúpavogs, sameinast í öfluga heild.
Við leitum eftir áhugasömu fagfólki í heilbrigðisþjónustu sem hefur vilja og metnað til að taka þátt í
þróunar- og skipulagsstarfi hinnar nýju stofnunar og starfa að þeim markmiðum að
• móta styrka stofnun, sem veitir góða þjónustu
• skapa leiðandi afl í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni
• framfylgja starfsmannastefnu með áherslu á mikilvægi hvers starfsmanns
• gefa starfsmönnum tækifæri til náms og rannsókna á sínu sviði með samvinnu við aðrar stofnanir
• skapa möguleika fyrir sérhæfingu og nýta sérþekkingu hvers starfsmanns sem best
Heilbrigðisstofnun Austurlands auglýsir lausa til umsóknar stöðu
Lækningaforstjóra
Heilbrigðisstofnunar Austurlands
Lækningaforstjóri ber faglega ábyrgð á framkvæmd lækninga og eftirliti með gæðum þeirra innan
stofnunarinnar. Hann er faglegur yfirmaður ailrar læknisþjónustu innan stofnunarinnar og veitir stjórn
og framkvæmdastjóra hennar faglega og almenna ráðgjöf. Lækningaforstjóri er talsmaður stofnun-
arinnar út á við um fagleg málefni er varða starfssvið hans. Um er að ræða fulla stöðu en hluti starfsins
eru almenn lækningastörf.
Starfið hentar lækni með fjölþætta læknismenntun og reynslu, svo sem að viðkomandi sé sér-
fræðingur í heimilislækningum og hafi jafnframt verulega starfsreynslu á sjúkrahúsi.
Staðan er veitt frá 1. janúar árið 2000. Umsóknarfrestur er til 15. nóvember n.k. Upplýsingar gefa
starfandi lækningaforstjóri, Stefán Þórarinsson í síma 471 1400 og framkvæmdastjóri, Einar R. Har-
aldsson, í síma 861 1999.