Læknablaðið - 15.11.1999, Page 89
Lanzo®
Sýruhjúphylki; A 02 B C 03 R E
Hven sýruhjúphylki inniheldur : Lansoprazolum ÍNN
15 mg eða 30 mg. Eiginleikar: Lyfið blokkar prótónu-
pumpuna (H+, K+-ATPasa) i paríetalfrumum magans.
Lyfið dregur þannig úr framleiðslu magasýru, bæði
grunnframleiðslu og við hvers kyns órvun. Lyfið frásog-
ast frá smáþórmum, en breytist í virkt form í súru frymi
paríetalfrumnanna. Fylgni er milli áhrífa á sýru-
framleiðslu og flatarmáls undir blóðþéttniferlum (AUC),
en ekki blóðþéttni hverju sinni. Blóðþéttni nær hámarki
1,5 klst. eftir töku lyfsins. Aðgengi er yfirleitt hátt (80-
90%), en er mjóg breytilegt milli einstaklinga. Binding
við plasmaprótein er um 97%. Helmingunanimi i blóði
er 1-2 klst.: hann lengist með hækkandi aldri og við
skerta lifrarstarfsemi. Lyfið umbrotnar að fullu (lifur og
skilst út sem óvirk umbrotsefni, 65% í saur og afgang-
urinn i þvagi. Ábendingar: Sársjúkdómur í skeifugöm
og maga. Bólga i vélinda vegna bakflæðis. Zollinger-
Ellisonheilkenni Æskilegt er að þessar greiningar séu
staðfestar með rðntgen eða speglun. Langtimanotkun
við bólgu í vélinda vegna bakflæðis eða við endur-
teknum sárum í skeifugöm. Uppræting á Helicobacter
pylori úr efri hluta meltingarfæra hjá sjúklingum með
sársjúkdóma, ásamt viðeigandi sýklalyfjum. Einkenna-
meðferð: Meðferð brjóstsviðaeinkenna og einkenna
vegna sýrubakflæðis við bakflæðisjúkdóm i vélinda og
maga. Frábendingar: Engar þekktar. Varúð: Við skerta
lifrarstarfscmi er helmingunartimi lengdur og skammta
getur þurft að minnka. Mcðganga og bijóstagjöf:
Klinísk reynsla af gjöf lyfsins á meðgóngutima er litil.
Fósturskemmdir hafa ekki komið fram við dýratilraunir.
Ekki er viuð hvon lyfið skilst út í bijóstamjólk.
Aukavcrkanir: Algengar (>1%): Miðtaugakerfi: Hófuð-
verkur, svimi. Meltingarfari: Niðurgangur, ógleði,
magaverkir, hægðatregða, uppkðst, vindgangur. Húð:
Útbrot Sjaldgæfar (0,1-1%): Þreyia. Milliverkanir:
Lyftð umbrotnar fyrir tilstilli cýtókróm P450 enzýma og
gæti haft milliverkanir við önnur lyf sem þetta
enzýmkerfi umbrýtur. Lyftð virðist ekki hafa milliverk-
anir við dlazepam, fenýtóín, teófýllín, warfarin, sýru-
bindandi lyf eða bólgueyðandi gigtarlyf. Skammu-
stærðir handa fullorðnum: Sýruhjúphylkin á að gleypa
heil og má hvorki tyggja þau né mylja. Hins vegar má
tæma innihaldið úr hylkjunum og blanda því saman við
kaldan vókva skömmu fyrir inntðku. Sjúklingum sem
ekki er unnt að gefa Lanzo 1 inntöku er hægt að gefa
Lanzo með magaslóngu. lnnihaldi eins syruhjúphylkis
skal blandað i 5 ml af eplasafa og gefa i gegnum
slönguna. Skeifugamarsdr. Venjulegur skammtur er 30
mg á dag i 2 vikur. Haft sárið ekki gróið, má halda
meðferð áfram i 2 vikur í viðbót. Við bakslag skal með-
ferð endurtekin. Við langtimameðferð er ráðlagður
skammtur 15 mg á dag. Magasár. Venjulegur skammtur
er 30 mg á dag i 4 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda
meðferð áfram i 4 vikur til viðbótar. Bólga í vélinda vegna
bakflaðis: Venjulegur skammtur er 30 mg á dag i 4
vikur. Hafi bólgan ekki læknast, má halda meðferð
áfram í 4 vikur til viðbótar. Við bakslag skal meðferð
endurtekin. Við langtimameðferð er ráðlagður
skammtur 15 mg á dag. Ef einkenni versna má auka
skammtinn í 30 mg einu sinni á dag. Upprating d
Helicobacter pylori: Lanzoprazól 30 mg geíið tvisvar
sinnum á dag auk tveggja eftirfarandi sýklalyfja:
Amoxicillin 1 g tvisvar á dag, metrónídazól 400 mg
tvisvar á dag, klaritrómýcín 250 mg tvisvar á dag, i 7
daga. Zollinger Blison heilkenni: Ráðlagður skammtur í
upphafi meðferðar er 60 mg einu sinni á dag. Finna þarf
hæfilegan skammt hveiju sinni og skal meðferðinni
haldið áfram svo lengi sem nauðsyn krefur. Skammtur
getur verið allt að 180 mg daglega. Fari dagskammtur
yfir 120 mg ætti að skipta honum ( tvær lyfjagjafir.
Einkennameðferð: Venjulegur skammtur er 30 mg einu
sinni á dag. Fyrir suma sjúklinga er 15 mg daglega
nægjanlegur skammtur. Ef einkenni eru enn til staðar
eftir 2-4 vikna meðferð ætti sjúklingur að gangast undir
frekari rannsóknir. Skammtastærðir handa bómum:
Lyfið er ekki ætlað bömum. Pakkningar og verð:
Sýruhjúphylki 15 mg (Hámarks útsöluverð úr
apótekum, skv. lyfjaverðskrá ( október 1998); 28 stk.
(þynnupakkað) -5064 kr.; 56 stk. (þynnupakkað) -
8999 kr.; 98 stk. (þynnupakkað) -14647 kr. Sýruhjúp-
hylki 30 mg: 14 stk. (þynnupakkað) -3081 kr.; .28 stk.
(þynnupakkað) - 5396 kr.; 56 stk. (þynnupakkað) -
9958kr. Hámarksmagn sem ávisa má með lyfscðli er
sem svarar 30 daga skammti.
Tilvísanir;
1. Castell D.O., et al, Gastroenterol, 1996
Vol. 91, No. 9,(1749-57),
2. Lyfjaverðskrá október 1998
|
s
WYETH LEDERLE
55
o
/b ^usturbakki hf.
--" P.O. BOX 909-121 REYKJAVÍK, ICELANO
ÞEGAR kÍRKNI OG WÍ RD
ERU SKOÐUÐ.....
......HEFUR LANZO
WÍNNINGINNU