Læknablaðið - 15.11.1999, Side 91
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
931
LANDSPÍTALINN
...íþágu mannúðar og vísinda...
Forstöðulæknir á öldrunarlækningadeild
Staöa forstöðulæknis á öldrunarlækningadeild Landspítalans er laus til umsóknar. Um-
sækjendur hafi sérfræðiviðurkenningu í öldrunarlækningum. Umsóknum fylgi upplýsingar
um nám, fyrri störf og reynslu af stjórnunarstörfum, kennslu og vísindavinnu. Umsóknir
sendist á eyðublöðum stöðunefndar lækna til Þórs Halldórssonar, forstöðulæknis á öldrun-
arlækningadeild, en hann veitir nánari upplýsingar í síma 560 1000. Netfang: thorhall@
rsp.is
Mat stöðunefndar byggist á innsendum umsóknargögnum. Umsóknir skulu berast fyrir 17.
nóvember 1999.
Sérfræðingur í geislasgreiningu
óskast á röntgen- og myndgreiningadeild Landspítalans. Umsóknir með upplýsingum um
nám, fyrri störf og reynslu af kennslu og vísindavinnu, sendist á eyðublöðum stöðunefndar
lækna til Ólafs Kjartanssonar, forstöðulæknis, sem einnig veitir nánari upplýsingar í síma
560 1070, netfang: olakj@rsp.is
Mat stöðunefndar byggist á innsendum umsóknargögnum.
Deildarlæknir/aðstoðarlæknir
óskast á röntgen- og myndgreiningadeild Landspítalans. Umsóknir, ásamt upplýsingum
um starfsferil, sendist Ólafi Kjartanssyni, forstöðulækni, sem einnig veitir nánari upplýsing-
ar í síma 560 1070, netfang: olakj@rsp.is
Ráðningartími til eins árs eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 15. desember 1999.
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra.
Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannahaldi Ríkisspítala, Þverholti 18, á heimasíðu Ríkisspítala
www.rsp.is og í upplýsingum á Landspítalanum.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.