Læknablaðið - 15.11.1999, Síða 96
936
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Lög Vísindasjóðs
Félags íslenskra heimilislækna
l.Sjóðurinn heitir Vísindasjóður Félags ís-
lenskra heimilislækna.
2. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að því að
heimilislæknar geli stundað rannsóknir, unn-
ið að gæðaþróun og hvaðeina sem ætla má
að verði faginu til framdráttar. Sjóðurinn
getur greitt styrki til rannsókna- og gæðaþró-
unarverkefna, borgað starfslaun, námskeiðs-
gjöld, ferða- og dvalarstyrki eða annað sem
að mati stjórnar sjóðsins telst sambærilegt.
3. Stjórn FIH skipar stjórn Vísindasjóðs sem
hér segir: Formaður FÍH, sem jafnframt er
formaður sjóðsstjórnar, einn er tilnefndur af
gæðaþróunarnefnd FÍH, og einn tilnefndur
af föstum kennurum í heimilislækningum
við læknadeild Háskóla Islands.
4. Stjórn sjóðsins skal ávaxta tekjur hans á
verðtryggðan hátt í banka, sparisjóði eða
skuldabréfum.
5. Stjórn sjóðsins ákveður hve miklu fé er út-
hlutað hverju sinni.
6. Umsóknum um styrki skulu fylgja greinar-
gerðir um vísindalegt gildi rannsóknar eða
mikilvægi verkefnis fyrir heimilislækningar.
Þá skal fylgja nákvæm skýrsla um vinnu-
áætlun, rannsóknartíma og kostnað. Stjórn
sjóðsins skal viðhafa þær vinnureglur að
flokka umsóknir eftir því hve mikilvægar
þær geta talist fyrir fagið. Vinnureglurnar
skal birta í Fréttabréfi FÍH um leið og aug-
lýst er eftir styrkumsóknum hverju sinni.
7. Ef stjórn sjóðsins eða stjórn FÍH telur nauð-
synlegt að breyta einstökum ákvæðum þess-
ara laga, er þeim það heimilt, enda séu stjóm-
armenn viðkomandi stjórnar sammála um
breytinguna. Slík breyting tekur þó ekki gildi
fyrr en hún hefur hlotið samþykki aðalfundar
félagsins. Megintilgangi sjóðsins má þó
aldrei breyta.
8. Afla má sjóðnum tekna á eftirfarandi hátt:
1. Framlög frá opinberum aðilum og einstak-
lingum.
2. Gjafir sem sjóðnum kunna að berast.
3. Framlög meðlima FIH.
4. Vaxtatekjur.
9. Verði sjóðurinn lagður niður renna eignir
hans til FÍH að % hlutum og til læknadeildar
Háskóla íslands (heimilislæknisfræði) að 'A
hluta.
Samþykkt á fundi stjórnar Vísindasjóðs FÍH
30. september 1998.
Katrín Fjeldsted
Guðmundur Sigurðsson
Lúðvík Ólafsson
Sjá auglýsingu frá sjóðnum á bls. 929.
Nálastungu- „læknir“ í Hveragerði
Nú er kominn til starfa kínverskur nála-
stungu-„læknir“ við Heilsustofnun í Hveragerði.
Um er að ræða samvinnuverkefni kínverskrar
stofnunar og Heilsustofnunar um að kynna
hefðbundnar kínverskar lækningar (traditional
chinese medicine) á Islandi. Kínverjinn, Ming-
hai Hu, hefur að baki 20 ára reynslu í nála-
stungumeðferð ásamt „vestrænum lækningum“
á sjúkrahúsi í Peking. Hu kemur hingað til
starfa að frumkvæði forsvarsmanna Heilsu-
stofnunar í Hveragerði.
Ólafur Egilsson sendiherra í Peking hafði
milligöngu um að Hu kæmi hingað og mun
hann að öllu óbreyttu dvelja hér landi í eitt ár.
Ætlunin er að nota tímann til að kynnast nála-
stungumeðferð eins og hún er framkvæmd í
Kína.
Ur fréttatilkynningu
Göngudeild sykursjúkra 25 ára
Málþing 13. nóvember
I tilefni 25 ára afmælis Göngudeildar sykur-
sjúkra Landspítalanum verður haldið málþing
um sykursýki í fundasal LI að Hlíðasmára 8,
Kópavogi.
Málþingið veðrur haldið laugardaginn 13.
nóvember og hefst kl. 13.
Nánari upplýsingar á Göngudeildinni.