Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2007, Blaðsíða 15
DV Sport miðvikudagur 11. júlí 2007 15
Sport
Miðvikudagur 11. júlí 2007
sport@dv.is
Deildafyrirkomulagið í hættu ÍA vann í framlengingu
Taugar leikmanna og allra viðsTaddra voru þandar Til hins íTrasTa í vesTurbænum í gær.
valur vann efTir óTrúlega víTaspyrnukeppni þar sem kr skoraði ekki mark bls .16.
Í gær fór fram agafundur KSÍ en
margir biðu spenntir eftir niður-
stöðum hans. Greinargerðir sem
bæði Keflavík og ÍA skiluðu bárust
of seint til að hægt væri að taka fyr-
ir mál málanna, leik ÍA og Keflavík-
ur í Landsbankadeild karla þann
fjórða júlí. Ekki náðist í Þóri Hák-
onarson framkvæmdastjóra KSÍ
en hann átti eftir að skoða greinar-
gerðirnar svo hægt sé að fella ein-
hvern dóm.
Páll Gísli Jónsson markvörður
ÍA fékk rautt spjald í leiknum og
fékk eins leiks bann líkt og Einar
Orri Einarsson leikmaður Kefla-
víkur. Guðjón Þórðarson þjálfari
ÍA hefur sakað Keflvíkinga um að
senda Einar inn á völlinn til þess
eins að hefna fyrir mark sem Bjarni
Guðjónsson skoraði. Þeir eru einu
leikmenn Landsbankadeildarinn-
ar sem fóru í leikbann.
Þeir sparkspekingar sem DV
leitaði til voru sammála um að
liðin ættu að vera sektuð fyrir að
hafa ekki stjórn á sínum liðum en
ekki dæma neinn í leikbann. Eng-
in spjöld fóru á loft í hamagangin-
um eftir leik. Þetta mál er ekki til að
koma knattspyrnunni upp á næsta
plan og orðið allt hið vandræðaleg-
asta.
Það vekur samt athygli að KSÍ
aðhefst ekkert í málinu. Skyldi
enska knattspyrnusambandið eða
eitthvert annað sérsamband leyfa
slíkt og átti sér stað eftir leik?
Það skal þó taka fram að stuðn-
ingsmenn liðanna eru ekki leng-
ur að velta sér upp úr þessum leik.
Puma-sveitin, stuðningsmannalið
Keflavíkur, og Skagamörkin, stuðn-
ingsmannalið ÍA, ætla að hittast
fyrir leikinn í lokaumferðinni. Farið
verður í Go cart og grillað áður en
haldið verður á leikinn. Leikmenn,
þjálfarar og stjórnarmenn liðanna
ættu að taka þá til fyrirmyndar og
grafa stríðsöxina.
benni@dv.is
KSÍ gerði ekkert varðandi hegðun leikmanna ÍA og Keflavíkur eftir leik liðanna.
ÍA-Keflavík ekki rætt
valur vann í vító
Ekkert gert aganefnd kSí frestaði
úrskurði sínum.