Læknablaðið : fylgirit - 01.02.1978, Qupperneq 21

Læknablaðið : fylgirit - 01.02.1978, Qupperneq 21
AF HAGLEIK LÆKNISHANDA - 19 Krosshús, Akranesi, byggt 1883. í þessu húsi framkvœmdi Bjöm fyrstu augnaðgerðir sínar. Fyrstu skjálgaðgerðina, sem greinir frá í bók Björns gerir hann 22. febrúar 1893 á 18 ára pilti úr Reykjavík með skjálg inn á við (strabismus convergens) og eru augun réttstæð eftir aðgerðina. Skömmu áður en Björn flyzt til Reykjavíkur leggur hann í tvísýna aðgerð við augnvöðvalömun, en árangurinn er ekki góður til langframa, sem vænta má af þeirrar tíðar tækni: Ung stúlka, 22 ára heimasæta í Viðey, leitar til hans með lömun á hliðlægum réttilvöðva (paralysis abducens). Gerir hann á henni tvær aðgerðir. Fyrst er gerður sinaskurður á miðlægum réttilvöðva án árangurs, en síðan er gerð framfærsla á sama augnvöðva með þeim árangri að tvísýnin er horfin, er hún fer heim. Er þetta fyrsta skráða heimildin um tilfærslu augnvöðva (fremlægning). Þessi sama stúlka leitaði til Björns rúmlega þremur árum síðar og kvartaði um tvísýni. Er athyglisvert að hann reynir prismagleraugu og ráðleggur rafmagnsmeð- ferð (electricitet) (Dagbók B, 30.09.93 og 04.02.97, einnig vitnað í bók A bls. 74). Arið 1893, er Björn sat enn á Akranesi, bættust fleiri sjúkdómsgreiningar við þær, er um getur í áVsskýrslu til landlæknis frá árinu áðurogeru þessar helztar: Ectropion (úthverling augnaloka), blen- orrhoe sacci lacrimalis(ígerð í tárapoka), holdsveiki í augum, retinitis (sjónubólga), scleritis (hvítu- bólga), staphyloma corneae post keratitis (glæru- gúlpur eftir glærubólgu), og glaucoma secundarium (fylgigláka). Arið 1893 bókfærir Björn 76 sjúklinga með augnsjúkdóma og þar að auki 114 með sjónlags- galla, og pantar hann gleraugu fyrir þá alla Af framansögðu sést að vagga íslenzkra augn- lækninga er á Skipaskaga. Þar eru fyrstu aðgerðir gerðar á augum og þangað þurfti fólk að leita, ef það þurfti á meiri háttar augnlæknishjálp að halda. Frá miðju sumri 1890 til ársloka 1893 þurftu landsmenn að fara til Akraness, ef þeir voru haldnir þeim kvillum í augum, sem héraðslæknar réðu ekki viðog til þess að fá mæld gleraugu eftir kúnstarinnar reglum, var þetta eina ráðið. Eins og samgöngum var háttað í þá daga var það miklum erfiðleikum bundið fyrir almenning. Héraðslæknisembættinu á Akranesi gegndi Björn til ársloka 1893 eða í 3‘/2 ár. Augnlæknir í Reykjavík I ársbyrjun 1894 sezt Björn að í Reykjavík ogfæst nær eingöngu við augnlækningar eftir það. A þessu tímabili var ekki hægt að stunda lækningar hér á landi nema fyrir embættislækna eða hljóta til þess opinberan styrk. Alþingi veitti Birni 2000 kr. ársstyrk til þess að hann gæti flutzt til Reykjavíkuroggefiðsigallan við augnlækningum. „Gekk það fullörðugt, en tókst þó, mest fyrir harðfylgni Isafoldar“, segir Sigurður Hjörleifsson, læknir og ritstjóri Norðurlands [24]. Hélt Björn þessum styrk meðan hann lifði. Skilyrði fyrir styrknum var, að hann hefði á hendi kennslu í augnsjúkdómum við læknaskólann og fcrðaðist á sumrin með strandferðaskipunum kringum landið, til þess að almenningur ætti sem hægast með að ná til hans. I blaðinu Fjallkonan 17. janúar 1894birtist eftirfarandi fréttapistill: „Björn Olafsson, augnlœknir, sem hefir veriö aukalœknir á Akranesi, hefir nú sez.1 að hér í bœnum, samkvœmt gerðum síðasla alþingis, og munu allir kunna þinginu þökk fyrir, því hér er hann miklu betur settur. Til hans scekja sjóndaprir og btindir menn víðsvegar af landinu, og hefir hann lœknað marga að meira eða minna leyli, og gert ekki allfáa alblinda rnenn heilskygna, er sumir hafa verið gamalmenni. Síðast laknaði hann þannig í sumar jjóra alblinda menn“ [42]. Er fyrsti augnlæknirinn sezt að í Reykjavík er höfuðstaðurinn aðeins sjávarþorp. Ibúatala bæjar- ins í árslok 1890 var 3886, árið 1900 voru bæjarbúar 6682 og í árslok árið 1910 var íbúatala bæjarins komin upp í 11.600 [25]. Til samanburðar skal þess getið að íbúatala landsins var árið 1890 70.927. Við manntalið 1901 var tala landsmanna 78.470 ogárið 1910 85.183 [26, 27, 28]. Er Björn hefur störf í höfuðstaðnum 8. janúar 1894 var Schierbeck landlæknir, en hann fer alfarinn utan í byrjun júlímánaðar sama ár. Tekur dr. Jónas Jónassen þá að sér embætti hans, en hann
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.