Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1978, Side 10

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1978, Side 10
8 skr. 1, 14) og í 4 tilvika var „berklaleysi" fyrir hendi og þess utan teikn, sem tengja má hugsanlegri röskun sjálfsónæmis (sj. skr. 3, 9, 11, 16). Sjúkrasaga 8 markast af samtíma uppákomu NHBV og sykursýki, sem telst staðfesta IAD. Eins eru 4 tilvikanna óefað berklakyns (sj.skr. 2, 5, 7, 20). Sönnunargögnin eru nýrnahettusvæðis-kölkun á rtg.mynd (8. mynd, sj.skr. 5 og 20) og berklaystar nýrnahettur við krufningu (sj.skr. 2). Eftirtektarvert er, að G.G. (sj.skr. 7) var aldrei talin með klíníska berkla og var teiknalaus um slíka a.ö.l. en ofannefnda nýrnahettu-kölkun, en náin samskipti við berklaveika á unglingsárum var staðreynd (e.t.v. nær 50 árum áður). Ekki er grein- ing S.G. (sj.skr. 2) síður athyglisverð, þar sem hún hefði örugglega flokkast sem UAD vegna engra merkja um virka berkla í banalegu sinni. IAD kom einnig til greina, þar sem skjöldungsörvi (Graves sjúkdóm- ur) var greindur í sögu gefandi byr undir vængi möguleikanum um tvennskonar kvilla tengda röskun sjálfsónæmis. Þrjú tilvikanna flokkast sem UAD (sj. skr. 4, 10, 17) enda ekki staðfestanleg berklaskemmd nýrnahettnanna þrátt fyrir sögu um berkla hjá öllum áratugum áður og sögu um mögulega utanlungnaberkla eitt sinn (spondylitis tberculosa, sj.skr. 17). Mynd 9 sýnir svo loks hundraðshluta hvers hinna þriggja flokka, dreifingu greiningar- og fæðingarára auk meðalald- urs sjúklinga-hópanna hvers um sig. Sjúkrasaga I: L.H.P., kvæntur laganemi, f. 12.01.1918, Keykjavik, var inniagður á lyflæknisdeild Landspitalans í júlí 1943, þá 25 ára gamall, vegna svo mikils máttleysis, að hann hafði ekki megnað að vera á fótum í hálfan mánuð fyrir komu. Sjúklingur hafði jaínframt. haft hitavellu, verið lystarlaus og létzt, og með sí- fellda ógleöi, þó án uppkasta. Tvö undangengin ár hafði hann verið heilsuveill og lystarlaus með ógleði og uppköst í mislöngum sprettum. Botnlangi tekinn sumarið ’42 og hurfu uppköst í bili við það. Talinn hafa létzt um það bil 10 kg samtals. 1 heilsufarssögu var markvert, að sjúklingur telur sig hafa fengið brjósthimnu- bólgu 49 ára gamlan og haft samgróninga vinstra megin siðan. Systir hafði haft skjöid- ungsörva (thyreotoxicosis). Við skoðun sást áberandi dökkvi íöskubrúnnj í andliti, yfir núningsstöðum og í lófaskorum. Ekki litablettir í slímu munns. Hæð 173 cm, þyngd 51.7 kg. Yfirbragð frisklegt útafliggj- andi, en ófær nánast að standa í fæturna. BÞ við komu 105/70, þrem dögum síðar 95/70 liggjandi, 70/? sitjandi og ómælanlegur stand- andi. Rannsóknir: Hgb. 78%, sökk 5 mm/klt, hv.blk. 4080. Þvag hreint. Electrolytamælingar voru gerðar af dr. Helga Tómassyni og Rann- sóknarstofu Jóns Steffensens, og var fyrir komu mælt Na: 105.7 mEq/l, K: 4.6 mEq/1. 1 legunni til 7. nóv. 1943 mældist hyponatremia margsinnis, en kaliumgildi eðlileg. 4.11.1943, Na: 143 mEq/1, K: 4.7 mEq/1. EKG reyndist eðlilegt. Rtg.mynd af lungum sýndi samvexti neðantil vinstra megin, a.ö.l. eðlileg. Mantoux 1:10000 = Mantoux 1:1000 = ++. KLÍNISK TEIKN UM BERKLA 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Alls Saga um virka berkla - + - + + ( + í + 5 (6) Teikn um lungnaberkla (+) - + + + + + 5 (6) Teikn um berkla utan lunqna + + 2 Jákvætt húðpróf f. berklum + + - 0 + + 0 + - + 0 - + 0 7 Saga um brjósthimnubólgu + + + + + 5 Berklar I ætt/umhverfi - - + - + - + + - - - - - - - - 0 - - + 5 Kalkanlr á nýmahettusvæði + 2 Nýrnahettuberklar v. kmfningu - + 0 - 1 + fyrir hendi, (+) e.t.v. fyrir hendi, - ekki fyrir hendi, o ekki athugað. 6, mynd.

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.