Læknablaðið : fylgirit - 15.05.1982, Page 13

Læknablaðið : fylgirit - 15.05.1982, Page 13
LÆKNABLAÐIÐ 11 hún var eins og kunnugt er amma hins merka skurðlæknis Matthíasar Einarssonar, sem lengi var yfirlæknir á Landakotsspítala. Sólveig var oftar en einu sinni sett til að gegna læknisstörfum í Eyjum í forföllum lækna, eins og meðal annars segir í „Justitsministeriets Skrivelse" 20. april 1863, um sérstaka þóknun (Honorar) til Sólveigar fyrir læknisverk. Annars má segja, að yfirsetukonur gegndu lykilhlutverki í meðferð nýfæddra barna á fyrri tíð. 2. kafli Þáttur Peters Schleisners læknis Ginklofanum útrýmt í Vestmannaeyjum Peter Anton Schleisner var fæddur ló.júní 1818 í Lyngby norðan Kaupmannahafnar og dáinn 26. febrúar árið 1900 (4). Hann lauk læknisprófi í Kaupmannahöfn 26. október 1842 við Hafnarhá- skóla og vann síðan á spítölum í Kaupmannahöfn 1843—1846. Fyrsta ritgerðin, sem vakti athygli á hæfileikum Schleisners fjallaði um bamsfararsótt, Kbh., 1846. Árið 1847 var hann sendur til íslands, samkvæmt sérstakri konungsskipan dagsettri í mars 1847, til þess, eins og þar stendur, „að rann- saka ginklofann í Vestmannaeyjum og finna varnir gegn honum" (47). Schleisner ritaði tvær bækur um íslandsferðina, sem komu út í Kaup- mannahöfn 1849. Önnur var doktorsritgerð „For- sög til en Nosographie af Island", en doktorsrit þetta er hið fyrsta í læknisfræði er ritað var á danska tungu, munnlega vörnin var þó flutt á latínu. Hin ritgerðin var „Island undersögt fra et lægevidenskapeligt synspunkt", (doktorsritið með viðauka) (75, 77).Árið 1851 kom úteftirSchleisner í London „Vital Statisticsof Iceland", en árið 1849 hafði Schleisner ritað „Om de islanske Epidemier" í Bibliotek for Læger, femte bind, s. 276—299. Schleisner hallaðist snemma að snertismitun í stað illalyktandi útgufunar (miasma) sem aðalor- sök sjúkdóma. Þessi kenning Schleisners vakti mikla athygli á alþjóðlegri kóleruráðstefnu í Wien 1874. í æviágripi Schleisners í Salomonsens Lexi- kon (Kbh., 1926) segir auk þessa frá námsferðum hans til Frakklands og Englands 1849—51, skipu- lags- og stjórnunarstörfum heilbrigðismála í greifadæmunum Schleswig-Holstein 1853—1864 og síðar í Kaupmannahöfn til aldamóta. Schleisn- er lét reisa „Öresunds"- og „Blegdamshospital“. í áðurnefndum ritum frá 1849 talar Schleisner um. að hann muni á öðrum stað ræða ginklofa- Peter A. Schleisner dr. med. F. i Lyngby á Sjálandi 1818. D. 1900. Hann var 5. læknirinn, sem sendur var til Vest- mannaeyja til að berjast við ginklufann. Hann varð siðar læknir í Schlcswig og Kbh. Etazráð 1877. málið sérstaklega. en sú umræða kom aldrei fyrir almenningssjónir undir hans nafni. Schleisner mun hinsvegar hafa sent heilbrigðisstjórninni dönsku skýrslu um þetta mál og fleiri, en sú skýrsla varsíðan gefin útaf öðrurn lækni, Júlíusi Thomsen dr. med., í Schleswig 1855 á þýskri tungu (85), en ritgerðin fjallar um sjúkdómsmálefni á íslandi og í Færeyjum. Auk Schleisners og Thomsens eiga efni í bókinni Eschricht, Tanum og Manicus. D.F. Eschricht, sem er danskur dýrafræðingur lýsir hér réttu samhengi sullaveiki í hundi, sauð og manni. (Þessi síðastnefnda bók mun ekki hafa verið í margra höndum eins og segir í inngangi vegna

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.