Innsýn - 01.12.1976, Page 7

Innsýn - 01.12.1976, Page 7
7 Hvar ertu aðventæska með eldinn þinn? Eldinn, sem verma skal þann, sem er kaldur og særður. Hættu að blunda. Höfðinu lyftu og sjáðu húmið, sem umlykur veg þinna landa og bræðra. Ris upp til starfa, hlustaðu á sorganna hljóm., hönd þína réttu fram, svo að tár megir þerra. Hvar ertu aðventæska, með eldinn þinn? Er óskin til starfa og kærleikurinn að þverra? Vakna þú aðventæska. Upp rís þú strax í dag; og lyft þínu blysi, loga þess glæð í skyndi, því líf er í veði. Lyft kyndlinum hátt. Ó, hátt. ÞÚ hika ei mátt því nóttin er niðadimm, í niðamyrkri er bróðir þinn fallinu nærri. Heyrirðu ei köllin á hjálp frá sálunum særðu? Sof ekki lengur. RÍs upp, þá markinu nærðu. Vakna og flýt þér, lyft blysinu hátt og loga þess glæð svo ljómi hans nái langt, - verði bjartari -stærri.- Hvar ert þú aðventæska, með eldinn þinn? - Er eldur þinn kulnaður - kærleikur Drottins þér fjarri? i lijork

x

Innsýn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.