Innsýn - 01.12.1976, Page 16

Innsýn - 01.12.1976, Page 16
HVERS VEGNA? framh. SOfíG 'A HIMNI SÍðasti kafli fjallaði um Lúsífer og fylgjendur hans og hvernig þeir áformuðu að fá alla hina englana á þeirra band. NÚ munum við komast að raun um hvað gerð- ist á meðal trúföstu engl- anna, því að þeir lögðu engu minna á sig að sannfæra alla englana um að reynast Guði trúfastir. Englarnir voru í raun og veru þrískiptir, það er að segja,í fyrsta lagi þeir sem þegar höfðu ákveðið að fylgja LÚsífer, í öðrulagi þeir, sem voru ákveðnir í því að reynast Guði trúfastir, og svo að lokum stór hópur engla sem ekki höfðu gert upp hug sinn hvorum þeir vildu fylgja. Þessi þriðji hópur varð nú fyrir miklum þrýstingi úr tveimur áttum. NÚmunum við reyna að lýsa því sem þarna gerðist. í fyrsta lagi,skulum við hugsa okkur að nokkrir af aðalenglunum sem sýndu Guði hollustu ákváðu að heimsækja LÚsífer. "Ef til vill meinti hann ekki það sem hann sagði," gætu þeir hafa sagt með sjálfum sér. "Ef til vill skildum við ekki fyllilega það sem hann var að reyna að tjá sig um." "En ef hann meinti nú nákvæmlega það sem hann sagði, eins og það hljómaði í okkar eyrum, verðum við samt að reyna okkar besta til að fá hann til að skipta um skoðun," sagði forystu- engillinn. "Við höfum alltaf verið svo nánir vinir og ég er viss um að hann mun hlusta á mig." "Það vona ég svo sannar- lega," sagði þriðji engill- inn. Ef hann þráast við, verður Guð svo sannarlega að taka i taumana. Ekki get ég ímyndað mér hvað hann tæki til bragðs, en það gæti verið eitthvað hræðilegt. Ég get bara ekki hugsað þá hugsun á enda." Hann var með grát- stafinn í kverkunum. "já, þegar við tölum um Guð," bætti enn annar engill við, "hugsið ykkur þá bara hvað þetta hlýtur að hryggja hjarta hans. LÚsífer, æðsti

x

Innsýn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.