Innsýn - 01.12.1976, Síða 16
HVERS VEGNA?
framh.
SOfíG
'A
HIMNI
SÍðasti kafli fjallaði um
Lúsífer og fylgjendur hans
og hvernig þeir áformuðu að
fá alla hina englana á
þeirra band. NÚ munum við
komast að raun um hvað gerð-
ist á meðal trúföstu engl-
anna, því að þeir lögðu engu
minna á sig að sannfæra alla
englana um að reynast Guði
trúfastir. Englarnir voru
í raun og veru þrískiptir,
það er að segja,í fyrsta
lagi þeir sem þegar höfðu
ákveðið að fylgja LÚsífer,
í öðrulagi þeir, sem voru
ákveðnir í því að reynast
Guði trúfastir, og svo að
lokum stór hópur engla sem
ekki höfðu gert upp hug sinn
hvorum þeir vildu fylgja.
Þessi þriðji hópur varð nú
fyrir miklum þrýstingi úr
tveimur áttum.
NÚmunum við reyna að
lýsa því sem þarna gerðist.
í fyrsta lagi,skulum við
hugsa okkur að nokkrir af
aðalenglunum sem sýndu Guði
hollustu ákváðu að heimsækja
LÚsífer.
"Ef til vill meinti hann
ekki það sem hann sagði,"
gætu þeir hafa sagt með
sjálfum sér. "Ef til vill
skildum við ekki fyllilega
það sem hann var að reyna að
tjá sig um."
"En ef hann meinti nú
nákvæmlega það sem hann
sagði, eins og það hljómaði
í okkar eyrum, verðum við
samt að reyna okkar besta
til að fá hann til að skipta
um skoðun," sagði forystu-
engillinn. "Við höfum alltaf
verið svo nánir vinir og ég
er viss um að hann mun
hlusta á mig."
"Það vona ég svo sannar-
lega," sagði þriðji engill-
inn. Ef hann þráast við,
verður Guð svo sannarlega að
taka i taumana. Ekki get ég
ímyndað mér hvað hann tæki
til bragðs, en það gæti verið
eitthvað hræðilegt. Ég get
bara ekki hugsað þá hugsun
á enda." Hann var með grát-
stafinn í kverkunum.
"já, þegar við tölum um
Guð," bætti enn annar engill
við, "hugsið ykkur þá bara
hvað þetta hlýtur að hryggja
hjarta hans. LÚsífer, æðsti