Innsýn - 01.12.1976, Side 17

Innsýn - 01.12.1976, Side 17
17 engillinn Hans, hefur snú- ist gegn honum og hafið upp- reisn gegn lögum himinsins." Þá heyrðist enn ein rödd er sagði, "ég get ekki skil- ið þetta. Hvað kom honum eiginlega til að byrja slíkar hugmyndir? Þetta er algjör- lega ástæðulaust." Þeir andvörpuðu allir mæðulega og hristu höfuð sín ráðalausir. "Jæja," sagði einn þeirra og stóð á fætur, "það stoðar ekki að við sitjum hér og syrgjum,við höfum verk að vinna. Það þýðingarmesta fyrir okkur að gera er að vera vingjarnlegir og þolin- móðir, og láta LÚsífer vita að við viljum ennþá að hann sé okkar leiðtogi, ef hann gerir upp gjörðir sínar við Guð. " Lúsífer sá hópinn nálgast sig. "Ahal" hefur hann ef- laust hugsað með sjálfum sér. "Hérna kemur sendinefnd for- ystuenglanna. Hvað skýldu þeir annars vilja. Ef til vill hafa þeir haft tíma til þess að hugsa um málið og hafa ákveðið að sameinast mér. Ef ég get fengið leið- togana á mitt band verður ekki erfitt að vinna hina englana." Þessar hugsanir komu Lús- ífer til að brosa, og hann gekk á móti gestum sínum glaður á svipinn. Þegar allir höfðu fengið sér sæti og ef til vill nokkur orð verið látin falla almenns eðlis, var eflaust nokkuð erfitt að fitja upp á erind- inu. Þegar öllu var á botn- inn hvolft þá höfðu englarn- ir aldrei horfst í augu við kringumstæður eins og þessar, og þetta var algjörlega nýtt vandamál fyrir þeim. En þar sem LÚsífer var ákafur að komast að raun um hvert erindi þeirra var, skulum við hugsa okkar að hann hafi sjálfur byrjað samræðurnar. "Það gleður mig að sjá að þið hafið ákveðið að meðtaka mig sem leiðtoga ykkar.Það sýnir hversu skynsamir þið eruó." "ÞÚ ert leiðtogi okkar, LÚsífer, og við erum ánægðir að hafa þig sem slíkan. Ekki einn einasti engill hefur óskað eftir breytingu þar á. Guð hefur gert þig að foringja okkar, og við höfum allir verið ánægðir meö fyrirkomulag Guðs." Þegar minnst var á Guð og Hans fyrirkomulag kom skuggi á ásjónu Lúsífers, en hann áttaði sig fljótt og svaraði rólega.

x

Innsýn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.