Innsýn - 01.12.1976, Blaðsíða 18
"Auðvitað verðið þið að
gera ykkur grein fyrir því,
að Guð hefur gert breytingu
á fyrirkomulagi sínu. Hann
tók það mjög skýrt fram þeg-
ar Hann boðaði til hins sér-
staka fundar. Hann setti
upp Soninn sem einræðis-
herra yfir okkur. Ég ætla
mér ekki að glata valdi
mínu, og ég vil ekki sjá
að þið englarnir glatið ykk-
ar réttindum heldur. Og það
er einmitt ástæðan fyrir því
að ég reyni svo mikið að
gera eitthvað í málinu. Öll
mín áform snúast um það að
hjálpa ykkur englunum."
Lúsífer talaði mjúklega og
reyndi þannig að ávinna sér
hylli þeirra.
"En, LÚsífer," andmælti
forystu engillinn vingjarn-
lega, "Faðirinn minntist
ekki einu orði á neinar
breytingar."
"Hlustaðu nú á mig,"
greip LÚsífer frammí fyrir
honum. "Ég veit meira um
þessa hluti en þú og segðu
ekki að ég hafi ekki reynt
mitt besta til að aðvara
ykkur."
"ó, LÚsífer," grátbað
forystuengilinn,"vilt þú
ekki hlusta á okkur og vera
sanngjarn? ÞÚ veist eins
vel og við að Sonurinn hefur
alltaf verið Föðurnum jafn
og aðeins vegna þess að hann
minnti okkur á þessa stað-
reynd í ræðu sinni þýðir
ekki að hann hafi gert neina
breytingu þar á."
"Og þú Lúsífer ert ennþá
okkar mikli leiðtogi eins og
þú hefur alltaf verið,"
bætti enn annar engillinn
við. "Svo að engin breyt-
ing hefur átt sér stað. Og
Lúsífer, okkur þykir leitt
að segja það en eina breyt-
ingin sem virðist hafa átt
sér stað er í þér, og frið-
urinn hér á himni er ekki
sá sami eftir að þú byrjaðir
þetta deilumál."
NÚ tók enn einn engillinn
til máls og sagði: "Lúsífer,
við höfum alltaf verið sér-
staklega góðir vinir og þú
veist að og tala við þig í
kærleika, þú segir að Guð
veiti okkur ekki frelsi. ÞÚ
veist að þetta er ekki satt,
því einmitt núna neyðir
Hann þig ekki til að hlýða
reglum sínum, og Hann gefur
þér jafnvel frelsi til að
tala á móti sér. Þínar eig-
in gjörðir sanna að röksemd-
ir þínar eru rangar. Svo,
hvað ertu í raun og veru að
gera? Það er ekkert til í
því sem þú ert að segja."
En Lúsífer var áfram
þrár og stoltur. Kalhæðnis-
lega svaraði hann, "svo að
»19