Innsýn - 01.12.1976, Side 36
28
heldur líka fitu í smjöri,
rjóma og mjólk og osti.
Allt er þetta mettuð fita.
Cholesterol magnið í fæð-
unni sem við borðum hefur
áhrif á cholesterol magnið
í blóðinu sem aftur er í
nánum tengslum við t.d.
kransæðastíflu. Það er
því hægt að minnka cholest-
erol magnið í blóðinu með
því að minnka mjög neyslu
þeirra fæðutegunda sem
innihalda cholesterol. Það
er hins vegar mjög
athyglisvert að enn áhrifa-
meiri aðferð til að minnka
cholesterol magn í blóðinu
er að minnka neyslu fitu og
hitaeininga. Það má segja
að sykurinn sé konungur
hitaeininganna. Það er því
eftirtektarvert að Ellen
White segir mikla sykur-
neyslu hættulegri en kjöt-
neyslu. (Counsels on Diet
and Foods,bls.328.) En
það dregur ekki úr hættu
kjötneyslunnar, og þá sér-
staklega fitunnar, en jafn-
vel magurt kjöt inniheldur
fitu.
0
Spurning: Er ekki hætta á
því að helgi hvíldardagsins
gleymist hjá þeim aðvent-
istum sem starfa á sjúkra-
húsum og mötuneytum, og
vinna þar á hvíldardögum
jafnt sem aðra daga?
Ættu aðventistar sem ráða
sig til starfa á sjúkra-
húsum og'í mötuneytum að
fara fram á að fá frí frá
vinnu á hvíldardögum?
Hvernig er fyrirkomulag
hvíldardagsvinnu og frí-
daga á slíkum stofnunum
safnaðarins erlendis?
Einlægur.
Svar: Jú, hættan er alltaf
til staðar undir svona
kringumstæðum, og það reyn-
ir mikið á hinn trúaða að
útiloka heimsleg og hvers-
dagsleg áhrif allt í kring,
og beina huganum til Guðs,
til andlegra hluta, til
helgi hvíldardagsins. Hér
er þá reiknað með að ein-
staklingurinn vinni aðeins
þau störf sem leyfilegt er að
vinna á hvíldardögum, þ.e.
þau verk sem óhjákvæmilegt
er að láta bxða til eftir
hvíldardag, eða sem ekki
var hægt að gera fyrir
hvíldardag. Sé um verk að
ræða sem teljast brot á
helgihaldi hvíldardagsins
verður náttúrlega mótsagna-