Innsýn - 01.12.1976, Side 39
31
líða yrði þetta ekki gert...
"Við eigum ætíð að fara
eftir "Svo segir Drottinn",
jafnvel þótt við með hlýðni
okkar völdum þeim sem enga
virðingu hafa fyrir hvíld-
ardeginum miklum óþægindum.
Annars vegar eru ætlaðar
þarfir mannsins; hins vegar
boðorð Guðs. Hvort er
þyngra á metaskálunum hjá
okkur?
Á heilsuhælum okkar á að
gefa sjúklingunum, ásamt
læknunum, hjúkrunarkonunum
og öðru starfsliði, mat,
eins og hverri annarri fjöl-
skyldu, með eins lítilli
vinnu og hægt er. En veit-
ingastaðir okkar eiga ekki
að vera opnir á hvíldardögum.
Fullvissið starfsliðið um
það að þann dag eigi þau til
að tilbiðja Guð. Lokaðar
dyr á hvíldardögum auðkenna
veitingastaðinn sem minnis-
merki fyrir Guð, minnismerki
sem lýsir því yfir að sjö-
undi dagurinn sé hvíldar-
dagur og á honum eigi ekkert
ónauðsynlegt verk að vinna."
Ég læt þá "Einlægan" um
að íhuga þær grundvallar-
meginreglur sem fram koma í
þessu. Það er það sem
skiptir höfuðmáli, að átta
sig á meginreglunum í hverju
máli. Stundum getur okkur
virst þær stangast á við
"hagsmuni" okkar, en okkar
raunverulegu hagsmunum er
best borgið þegar við fylgj-
um meginreglum Guðs Orðs og
Anda Spádómsins hvað sem það
kostar.
o
KLÍKUSKAPUR?
Bergmáli barst eftir-
farandi bréf frá "Óánægðum":
Mig langar til að kvarta
yfir dálitlu og vona að það
verði tekið til greina.
Þannig er, að þegar unglingar
safnaðarins koma saman, þá
er allt of mikið af þvi að
þeir hópi sig saman, sem e.
t.v. er ekki svo slæmt í
sjálfu sér, en þetta eru svo
oft sömu hóparnir og það sem
verra er, er að það verða
alltaf einhverjir útundan.
Þetta er hættuleg þróun og
hefur leitt til þess að ein-
staklingar hafa misst áhuga
á safnaðarmálum og samfélag-
inu.
Þess vegna skora ég á
okkur (sic), unga fólk, kom-
um saman til að uppbyggja
alla en ekki bara skemmta
okkur sjálfum. Klíkuskapur
ætti ekki að sjást á meðal
okkar.
Óánægður.