Innsýn - 01.12.1976, Síða 43

Innsýn - 01.12.1976, Síða 43
35 eldfast fat eða form. Lok sett yfir. Látið bakast við meðalhita (350°F) í 10 mín. Snúið við á fatinu, hrært í, iokið sett aftur á og látið bakast 10 mín. í viðbót. Ætti að duga fyrir sex. Ýmsir hafa beðið sérstak- lega um uppskrift af "spönskum kjötbollum" þær eru sérlega vinsælar af ungu fólki. Og passa ágætlega með spaghetti ef þær eru soðnar í tómatsósu. Þessar bollur má líka til tilbreyt- inga sjóða í t.d. sveppasósu. "SPÁNSKAR- BOLLUR" 2 bollar rifinn ostur 2 bollar ósæt kexmylsna (t.d. Ritz kex) 1 smátt saxaður laukur 3 egg 1/2 bolli malaðar hnetur Öllu blandað saman og búnir til litlir "boltar". Brúnað á pönnu. Látið malla í sósunni í 1/2 klst. SÓSA 1 stór laukur soðinn í 1-2 msk. olíu, þar til hann er meyr. 1/2 bolla tómatsósu bætt út í og þynnt með vatni eftir smekk. HUGLEIÐING Hefur þú hugsaó um hve þýðingarmikil matreiðslan er fyrir fjölskyldu þína? Heilsa mannsins þíns og barnanna eru að miklu leyti i þinni hendi. Hvað gefurðu þeim að borða? Skellirðu einhverju í pottana á síð- ustu stundu? Notarðu langan tíma í að baka fínar kökur sem gera síðan fjölskyldu þinni ekkert gott? Eða not- ar þú tíma á hverjum degi til að hugsa út hvað muni fullnægja næringarþörf fjöl- skyldunnar? Systir White hefur mikið að segja um mikilvægi matreiðslu. HÚn segir líka að "FÓrnarlömb lélegrar matreiðslu má telja í þúsundum og tugum þúsunda. Á marga grafreiti mætti skrifa: "DÓ vegna lélegrar matreiðslu." "DÓ vegna þess að maganum var misboðið."(Counsels on Diet and Foods eftir E.G. White,bls.257). "Það er synd að bera á borð illa undirbúinn mat... Við skulum muna það, að hag- nýt trúarbrögó eru fólgin í góðum brauðhleif." (Counsels on Diet and Foods,eftir E.G.White,bls.251)

x

Innsýn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.