Innsýn - 01.04.1978, Blaðsíða 14
14
11 ◄----
landi brott til náms of ung.
Því fylgja margir ókostir.
Við ættum að láta í ljós
þarfir starfsins jafnvel á
skýrari hátt en við höfum
gert. Síðan þegar ungt
fólk hefur séð möguleikana
í starfinu þá getur það
sjálft valið. Við starfs-
kynningu í skólum ætti að
koma á framfæri þörf safn-
aðarins og einnig kynna
önnur störf.
Meginatriði E.G.White
að menntun og endurlausn
fari saman. HÚn bendir á
það að menntun eigi að vera
undirbúningur þjónustu.
Menntun á að búa fólk undir
þjónustu við Guð og menn
hvaða starf sem menn velja
sér.
THEÓDÓR GUEXJÓNSSON
Æðsta takmark skólamála
kemur fram í bæn Jesú, "...
að varðveita þá frá heimin-
um." Þetta felur í sér
menntun sem hæfir þegnum
Guðs ríkis. "Að varðveita
frá heiminum" má þó ekki
vera túlkað þannig að úti-
lokuð séu hjálpleg gögn sem
fengin eru utan vébanda að-
ventista. "Varðveisla"
þýðir ekki "einangrun."
Eðli einstaklingsins sem
varðveita á krefst þess að
viss kynni fari fram milli
hans og þess sem varast
ber.
Hingað til hefur óneitan-
lega farið fram ómeðvituð
hvatning til xings fólks, að
það mennti sig í guðfræði.
Ég er hlynntur guðfræðinámi
og að prédikunarstarfinu sé
sinnt, en ef einstaklingar
snúa sér að kennslustörfum
ættu þeir að læra til þeirra
starfa einnig. Ég er
hlynntur því að áhugasamt
ungt fólk, sem sýnir hæfi-
leika á vissum sviðum sé
uppörvað beint til þess að
mennta sig í ákveðið
kennslustarf.