Innsýn - 01.12.1978, Blaðsíða 11
11
Mzssías sEm aldrei uar
krDssÍEstup
Fyrir það bil tvöþús-
und árum síóan fæddist
sveinbarn í þennan heim.
Heimili þessa drengs var í
Palestínu. Drengur þessi var
yndi allra sem hann litu, og
veitti hann foreldrum sínum
mikla gleði. Faðir hans og
móðir voru Guði þakklát fyr-
ir drenginn sinn og vildu
gera honum eins vel og þau
gátu.
Innan veggja þessa ánægju-
lega heimilis óx litli snáð-
inn fljótt og vel. Strák-
urinn sýndi merki þess að
hafa hlotnast í vöggugjöf
bæði vit föður síns og ljúf-
lyndi móður sinnar. Sem
barn var hann oftast glaður
og tók lífinu fyrirhafnar-
lítið.
En tíminn leið hratt, og
áður en varði var drengur-
inn orðinn að glæsileg\im
ungum manni. Foreldrar
hans höfðu kennt honum allt
gott það sem þau kunnu, og
reynt að sýna honum með
fyrirmynd sinni þess konar
líf, sem þau vildu að hann
eignaði sér.
E.n eftir að drengurinn
tók að fullorðnast höfðu
þau miklar áhyggjur af því
hvernig hann eyddi tíma
sínum, og ekki leið á löngu
áður en kom að því, að þau
urðu fyrir miklum vonbrigðum
með soninn. Sem ungur maður
byrjaði hann að láta uppi
sjálfstæðar skoðanir sínar.
Skoðanir hans og almennar
vinsældir ollu því að brátt
myndaðist utan um hann all-
stór áhangenda hópur. Þessir
vinir hans gerðu umga mann-
inn að foringja sínum.
Fylgjendur hans dáðu hann og
virtu svo, að þeir gerðu
nærri allt sem hann sagði
þeim að gera.
En eins og fyrr segir
voru það ekki allir sem
hrifust af skoðunum hans.
Foreldrar hans voru meðal
þeirra sem höfðu miklar
áhyggjur af unga manninum.
Sonur þeirra var mjög trú-
aður og var einungis gott
um það að segja, en þeim
fannst hann ganga allt of
langt er hann sagðist vera
Messías, - hinn fyrirheitni
konungur ísraels. Þau höfðu
reynt að útskýra fyrir honum
spádómana um Messías og þó
að þess væri vænst í Palest-
ínu að Messías mundi birtast
á þeirra tímun var það harla
ólíklegt að sonur þeirra
væri Messías, sérstaklega
ekki, þegrr spádómarnir um
Messías b..ntu á ólíkar að-
stæður. n þetta dugói
ekki til að breyta hugsunar-