Innsýn - 01.03.1980, Qupperneq 2
Hvenœr
Við bjóðum öllum lesendum
gleðilegt nýár, en mannlega
séð virðist vanta bæði gleði
og framtíðarvon hvað snertir
nýárið.
Einu sinni var gert grín
að þeim sem voru að tala um
lok heimsins samkvæmt spá-
dómum Biblíunnar. NÚ eru
það vísindamenn sem segja
frá því hvernig heimurinn
er að líða undir lok - og
hvar stöndum við?
Spurningin er ekki lengur
EF...?
NÚ er það orðið HVENÆR
sem menn velta fyrir sér.
Mun George Orwell hafa rétt
fyrir sér með 1984?
Það hefur ekki skeikað
hjá hinni marg mistúlkuðu
fjölskyldu móður sem Guð
notaði á undursamlegan hátt
til þess að beina athygli
okkar aftur til Krists og
Ritningarinnar. Ellen White
skrifaði: "siðustu atburð-
irnir munu gerast með skjót-
um hætti'.'
Verðbólga, olíukreppa,
íran og nú strax í upphafi
nýársins hertaka Afghanist-
ans, geysihækkun á verði
gulls (sem kemur vegna ótta
og vantrausts við framtíðina)
eru efstir á baugi erlendis.
Endurtekin PÓstrán i Sand-
gerði og árás 80-100 ung-
menna á lögreglustöðina á
Sauðárkróki sýna að ísland
hefur smitast af umheiminum.
(Á sjónvarpið einhvern hlut
í málinu? spyr einhver).
Árás á lögregluna á Selfossi
og morðin um borð í Tý gera
málin enn alvarlegri.
Eigum við tíu ár eftir?
Eða fimmtíu? Get ég klárað
námið? Eða fullgert húsið?
"Þvi er það eins og
Heilagur andi segir: í dag
ef þér heyrið raust hans,
þá forherðið ekki hjörtu
yðar." (Hebr.3,7).
Leggðu öll áform framm
fyrir Guð.
Á morgun byrjar i dag með
honum.
Guð gefi þér gleðilegan
dag i hans návist hér á
jörðu - þá ert þú tilbúinn
fyrir komu hans - i dag.'
David West
Innsýn Kristilegt blað fyrir ungt fólk
Ritstjórn: David West ritstj. og ábyrgðarm. Guðni Kristjánsson,
María Björk Reynisdóttir, Ella Kristín Jack. Hönnun: Róbert Brim-
dal. Veró: árgangurinn 10 blöð kosta kr. 3.000.-
Skoðanir og túlkanir sem birtast í lesendadálkum, blaðsins, að-
sendum greinum eða viðtölum eru ekki endilega skoðanir ritstjórn-
arinnar eða útgefenda.