Innsýn - 01.03.1980, Blaðsíða 10
10
SLYS
Einu sinni var útsýnis-
staður fyrir utan þorp nokk-
uð.
Þetta var fallegur staður
og fólkið sótti þangað oft.
Stór skilti voru sett upp
til að vara fólk við að
ganga nálægt klettabrúninni.
Dag einn datt ungur pilt-
ur fram af brúninni. Félagi
hans hljóp niður í þorpið
til að ná í hjálp. Menn
komu hlaupandi og létu mann
síga niður til hans en pilt-
urinn var þegar látinn.
Eftir jarðarförina kom
þorpsráðið saman. "Við verðiom
að gera eitthvað í þessu"
sögðu þeir "það er átakan-
legt að missa ungmenni svona.
Það var ákveðið að leggja
veg að rótum klettsins til
þess að ná fljótlega til
fólks sem kynni að detta
niður í framtíðinni.
Það var tæplega búið að
ganga frá veginum þegar ung
stúlka datt fram af brúninni.
Það var farið með bíl á stað-
inn en þá kom í ljós að
venjulegur bíll var ekki
heppilegt farartæki til þess
að flytja slasaða manneskju
í bæinn. Stúlkan lést á
leiðinni.
Á þorpsráðsfundi var
ákveðið að kaupa sérstakan
sjúkrabíl. Og það var
strax til hjálpar því að
næst þegar unglingur datt
var hann fluttur í sjúkra-
hús og lífi hans bjargað.
En því miður var hann lamað-
ur það sem eftir var ævinn-
ar. Hann var sonur banka-
stjórans og hafði verið mjög
efnilegur íþróttamaður og
námsmaður.
Einu sinni enn kom þorps-
ráð saman og allt fólkið
fylgdist spennt með. Enginn
virtist vita hvað ætti að
gera - aðvörunarskilti,
vegurinn, sjúkrabíllinn,
virtust ekki duga.
Loks tók gamall maður
til máls og sagði hægt og
rólega: "Ættum við ekki að
setja upp girðingu?"
Þegar góðir foreldrar
segja nei við börnin sín,
gæti þá verið að með því
vilji þeir setja upp girð-
ingu til þess að fyrirbyggja
slys?
Það getur túlkast sem
takmörkun á frelsi einstakl-
ings eða umhyggja vegna
reynslu annarra manna.
Hvort viltu fremur -
sjúkrabíl eða girðingu?
David West,
(efniviður úr Signs of
the Times Aug.1977)