Innsýn - 01.03.1980, Síða 12
12
Fxkniefnavandamálið hefur verið nefnt í mörgum Innsýnarblöðum
árið 1979. Revnsla hefur sýnt að vandamálin koma aðeins
seinna til íslands og verða hlutfallslega minni. Það er skárra
fyrir okkurað vera vakandi fyrirfram svo að það komi okkur
ekki á óvart. Óvinurinn vill gera árás á okkar ungmenni - það
er okkar að styrkja þau og reyna að fræða og fyrirbyggja.
Sláandi grein í Morgunblaðinu í desember gaf bersýnilega i
ljós að vandamálið er þegar hér og snertir þúsundir mannal
Við fengum leyfi frá Morgunblaðinu til að birta greinina og
erum mjög fegin að geta gert það.
"Þróun i fikniefnamálum
hefur verið nákvæmlega eins
hér á landi og erlendis. HÚn
hefur bara verið hægari. Og
þvi miður eru engin teikn
á lofti um annað en þessi
þróun haldi áfram og ástand-
ið eigi eftir að verða ennþá
alvarlegra á næstu árum.
Þetta mælti Guðmundur
Gigja lögreglufulltrúi hjá
fikniefnadeild lögreglunnar
i Reykjavik, þegar Morgun-
blaðið ræddi við hann um
ástandið i fikniefnamálum,
en hann á að baki margra
ára starf við þennan mála-
flokk.
Og hvernig verður þá á-
standið á næstu árum að
mati Guðmundar. - Það mun
berast sifellt meira af
efnum inn i landið og si-
fellt fleiri ungmenni munu
ánetjast fikniefnum. Sterku
efnin verða meira áberandi
á markaðnum, t.d. heróin,
og æ fleiri islensk ungmenni
verða heróinsjúklingar. Til
að byrja með kynnast þeir
heróini erlendis og byrja að
neyta þess og þeir koma svo
hingað sem sjúklingar. siðan
mun notkun á heróini hefjast
hér innanlands. Afbrotum
tengdum fikniefnaneyslu mun
fjölga og siðast en ekki
sist munu æ fleiri islensk
ungmenni deyja vegna notkun-
ar fikniefna, en nú þegar
vitum við um nokkur dauðs-
föll islenskra ungmenna, sem
beinlinis má rekja til
fikniefnaneyslu. Þetta er
að gerast allt i kringum
okkur, t.d. á Norðurlöndunum
þar sem hundruð ungmenna
deyja árlega vegna sterku
fikniefnanna. Ég get
ómögulega séð hvers vegna