Innsýn - 01.03.1980, Page 15
þess að fólk hafi haft at-
vinnu af dreifingu á fíkni-
efnum.
ffERÓÍNIÐ KOMIÐ TIL ÍSLANDS
Hefur nýjum tegundum
fíkniefna skotið upp á mark-
aðnum hér?
- Kannabisefnin eru yfir-
gnæfandi á markaðnum eins og
áður og notkun á hassolíu
hefur greinilega farið vax-
andi. Þá hefur nortkun á
ofskynjunarlyfinu LSD einnig
farið vaxandi upp á síðkast-
ið en það var sáralítið not-
að um tíma. Við höfum nokk-
ur dæmi um mnflutning og
notkun á kókaíni og loks
höfum við fengið staðfest
að heróín hefur verið flutt
inn í smáum skömmtum á þessu
ári og þess neytt. Heróín
hefur ekki áður komið hingað
svo við vitum en aftur á
móti höfum við haft fregnir
af því erlendis frá að
fleiri og fleiri íslendingar
hafi þar kynnst heróíni.
Þetta sem hefur verið að
gerast í fíkniefnamálunum
hérna er því miður það sama
sem hefur verið að gerast
annars staðar í Evrópu. Við
erum hættir aó hrökkva við
þótt við heyrum heróín nefnt
og það segir talsverða sögu.
NÚ vantar ekki nema stað-
festingu á einu af hættu-
legu efnunum, svonefndu PCP
eða englaryki. Það er efni
15
ekki ósvipað LSD en talið
ennþá hættulegra og það mun
vera tískulyf í Bandaríkj-
unum um þessar mundir. PCP
mun koma hingað eins og önn-
ur fíkniefni og þá verðum
við komnir á heimsmæli-
kvarða. Ég tel víst að það
sem helst hafi dregið úr
innflutningi hættulegustu
efnanna, þ.e. kókaíns og
heróíns, sé verðið, því að
eitt gr.axnm af .þessum efnum
kostar hundruð þúsunda króna.
KANNIBISPLÖNTUR RÆKTAÐAR í
HEIMAHÚSUM
Eru einhver brögð að þvx
að reynt sé að rækta kanna-
bisplöntur hér á landi?
- Já, það eru talsverð
brögð að því og í fyrra
gerðum við t.d. upptækar 60-
70 plöntur af kannabis sat-
iva og á þessu ári höfum
við einnig lagt hald á marg-
ar plöntur og síðast fjórar
plöntur fyrir nokkrum dögum.
Þessar plöntur lifa vel við
stofuhita og það er enginn
vafi á því að ýmsir verða
sér úti um kannabisefni með
því að rækta þær.
NÚ hafa íslendingar verið
ansi áberandi í fíkniefna-
málum erlendis á þessu ári.
Hver er skýringin að þínu
mati?