Innsýn - 01.03.1980, Síða 17

Innsýn - 01.03.1980, Síða 17
17 FÍKNIEFNABROT TENGJAST ÖÐRUM AFBROTUM Guðmundur GÍgja sagði að lokum að sú breyting hefði nú orðið að önnur afbrot tengdust fíkniefnaafbrotum en það hefði verið nánast óþekkt áður. Nefndi hann sem dæmi að fyrir tveimur árum hefði verið stolið talsvert miklu af gjaldeyri frá fyrirtæki einu x Reykjavík og var þýfið not- að til þess að fjármagna fíkniefnakaup erlendis. Sagði Guðmundur að nokkur innbrot hefðu verið upplýst á þessu ári vegna rannsókn- ar á fíkniefnabrotum. - Það er augljóst, sagði Guðmundur, að fíkniefna- neysla fer vaxandi. Þetta er vandamál, sem hefur verið gefinn of lítill gaum- ur, því miður. Það þarf að gera stórátak í fíkni- efnavandamálinu ef ekki á illa að fara." SS. fjUlskyldumöt í sumar verður mót í Vestmannaeyjum í fyrsta skipti í fjölda mörg ár. Þetta verður fjölskyldumót frá föstudagskvöldi til mánu- dagskvölds, 18-21 júlí 1980. Við eigum von á mjög góðum gesti sem er bæði söngstjóri og ræðumaður - og þekktur af sumum íslendingum þótt hann hafi aldrei áður komið til íslands. Meira um hann seinna þegar við erum búin að ganga frá því formlega. Á sunnudeginum og mánudeg- inum verða hópferðir - ein á landi og ein á sjó. Við förum öll til Vest- mannaeyja til að boða boð- skapinn með framkomu okkar og samkomum. Söfnuð\irinn býður okkur velkominn og er þegar farinn að vinna að undirbúningi mótsins. Okkar fólk hlakkar til þess að sem flestir komi og geri sumarmótið 1980 að kristilegum viðburði sumars- ins í Vestmannaeyjum. (Ef margir haf.a áhuga kemur til mála að leigja flugvél og minnka þannig ferðakostnaðinn). í VESTMANNAEYJUM

x

Innsýn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.