Kjarninn - 29.08.2013, Page 9
bíðum þess sem þar verður að finna varðandi Sparisjóðinn
í Keflavík. Með hliðsjón af því og þessari PwC-skýrslu
munum við að sjálfsögðu leita réttar okkar. Við verðum ekki í
rónni fyrr en þeir sem stjórnuðu sparisjóðnum verða dregnir
WLO£E\UJ²DU 2NNXUYDUWM£²I\ULUO¸QJXD²P£OWHQJGVSDUL
sjóðnum væru til rannsóknar hjá Sérstökum saksóknara en
síðan þá hefur lítið gerst. Mögulega er hann líka að bíða eftir
stóru sparisjóðaskýrslunni.“
Hjálmar segir mikla reiði á meðal stofnfjáreigenda. „Við
viljum bara að hið sanna komi í ljós og þeir sem misnotuðu
aðstöðu sína hjá sjóðnum verði látnir sæta ábyrgð á falli
hans, sem hefur haft alvarlegar fjárhagslegar afleiðingar
fyrir mjög marga.“
Sérstakur saksóknari rannsakar möguleg umboðssvik
Embætti Sérstaks saksóknara hefur haft skýrslu PwC undir
höndum frá því að fjölmiðlar fluttu fréttir úr henni á síðasta
ári. Skýrslan kemur inn á nokkur mál sem embættið hefur
haft til meðferðar.
Fjármálaeftirlitið hafði rannsakað málefni Spari sjóðsins
í Keflavík um nokkuð langt skeið, meðal annars vegna
grunnsemda um að lánveitingar sjóðsins, án fullnægjandi
trygginga, til einstaklinga og lögaðila gætu verið umboðssvik
samkvæmt hegningarlögum. Við slíku broti getur legið allt
að sex ára fangelsi. Í rannsókn FME var meðal annars skoðað
hvort Geirmundur Kristinsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri,
hefði farið út fyrir heimildir sínar og umboð í starfi.
FME hætti rannsóknum á öllum málum sem gætu flokkast
sem hrunmál um síðustu áramót. Þá var einhverjum málum,
sem ekki höfðu verið rannsökuð í þaula, velt yfir til embættis
Sérstaks saksóknara. Heimildir Kjarnans herma að á meðal
þeirra mála hafi verið fjölmörg mál tengd Sparisjóðnum í
Keflavík.
Smelltu til að sjá verkefni
sparisjóðanefndarinnar
5/05 kjarninn fjármál