Kjarninn - 07.11.2013, Blaðsíða 75

Kjarninn - 07.11.2013, Blaðsíða 75
01/01 kjarninn Álit Þ egar ég skelli fram þeirri staðhæfingu að á Íslandi sé fötluðu fólki mismunað á hverjum degi sé ég oft efasemdasvipinn á fólki og ég skil hann að mörgu leyti. Mismununin er að sumu leyti ekki áberandi og á sér stað í vernduðum úrræðum, á lokuðum fundum, með illu augnaráði eða ærandi þögn sem sviptir fatlað fólk réttindum sínum. Við höfum jafnframt önnur viðmið um hvað er viðunandi fyrir fatlað fólk en ófatlað fólk, og hvort sem við viljum viðurkenna það eða ekki lifum við og hrærumst í samfélagi sem telur það í lagi að útiloka, aðgreina, frelsissvipta og beita fatlað fólk ofbeldi. Mismununin er því á ákveðinn hátt ósýnileg og á annan hátt eðlileg. Ekki bara fyrir ófatlað fólk, heldur líka fyrir okkur sem erum fötluð, sem erum orðin svo vön mismunun og þeim skaða og sársauka sem af henni hlýst. Þar að auki viljum við mögu- lega ekki segja frá þessari líðan af ótta við að vera endanlega stimpluð inn í samfélagið sem aumingjar og fórnarlömb af því við erum með skerðingu – ekki manneskjur sem upplifa mismunun vegna fordóma í samfélaginu. Barnaskapur að berjast fyrir mannréttindum? „Nefndu dæmi,“ segir fólk þegar ég held þessu fram og því miður er það ekkert mál. Sum þeirra eru augljós og lítið mál að benda á en önnur eru duldari og flóknara að setja fingurinn á. Augljósu dæmin í mínu lífi eru að komast ekki í kvikmynda hús því aðgengið er ekki viðeigandi fyrir hjóla- stóla, þurfa að skila læknisvottorði þar sem þarf að koma fram að ekki séu vísbendingar um fötlun þegar ég ætla að sækja um að gerast varanlegt fósturforeldri og þegar karl- maður gengur upp að mér á bílastæði fyrir utan matvöru- verslun og káfar á mér blygðunarlaust þegar ég var ekki í aðstæðum til að komast burt á stundinni. Flóknu dæmin, sem erfitt er að benda á, eru þegar ég fer í bankann og ókunnug manneskja klappar mér á kinnina og segir „mikið er þetta sorglegt“. Þegar ég þori ekki svo árum skiptir að fara til kvensjúkdómalæknis í hefðbundnar erindagjörðir því ég er svo hrædd um að læknirinn tali við mig eins og barn og gangi út frá því að ég sé kynlaus. Einnig þegar ég mæti í útvarpsviðtal með maskara og varalit og þáttastjórnandinn segir á innsoginu „Jjiii, ertu bara máluð, og allt?“ eins og hún hafi aldrei séð málaða konu á ævinni. Þar að auki þegar ég sit á fundi í vinnunni með hinu opinbera og embættis maður segir með föðurlegri röddu í ráðuneyti ,,Freyja mín, þú verður að gera þér grein fyrir því að fatlað fólk mun aldrei fá alla þá þjónustu sem það þarf á að halda.“ Eins og að það sé eðlileg og sjálfsögð staðreynd og bara barnaskapur af mér að vera að berjast fyrir öðru. Að búast við og gera ráð fyrir mismunun Þegar þessi augljósu dæmi eru nefnd vill fólkið sem bað um þau ekki endilega heyra þau og til þess að draga úr alvar- leika þeirra og líða betur með sínar nýju upplýsingar bregst það við með því að benda á að fólk sem mismunar viti ekki betur, þetta hljóti að vera einstök tilvik og enginn annar hafi lent í þessu sama. Veruleikinn er hins vegar sá að þetta er daglegt brauð, ekki bara fyrir mig heldur fatlað fólk í kringum mig, ásamt því sem íslenskar rannsóknir gefa það skýrt til kynna að þessi mismunun á sér stað. Mismunun sem leiðir til daglegra mannréttindabrota sem verða hversdags- leg. Og það hættulega er að mörg okkar sem upplifum það á eigin skinni förum að haga okkur í samræmi við það og gera ráð fyrir því sem eðlilegum hluta af lífinu. Það geri ég til dæmis með því að hringja á undan mér allt sem ég fer til þess að tryggja að ég komist inn. Með því að tefja það stöðugt að verða foreldri af ótta við viðbrögð samborgara minna sem halda því margir fram að ég geti ekki myndað geðtengsl við börnin mín þar sem ég geti ekki haldið á þeim. Jafnframt með því að sleppa því í auknum mæli að fara niður í bæ eftir partý því ég veit að ég verð að öllum líkindum fyrir áreitni eins og í öll hin skiptin. Ég geri það líka með því að passa að horfa ekki í augun á fólki í búðinni til þess að minnka líkurnar á því að verða fyrir niðurlægingu í formi vorkunnar, mála mig fyrir minnsta tilefni því flestir gera ráð fyrir því að ég hafi mig ekki til, ógna heilsu minni til þess að þurfa ekki hugsanlega, kannski, að hitta fordómafullan lækni og vera hrædd við að gera kröfur til embættis- og stjórnmálamanna því jafnrétti fatlaðs og ófatlaðs fólks sé bara draumórar og tímasóun. Umburðarlyndi gagnvart mismunun Ekkert af þessu er í lagi, hvort sem það á sér stað einu sinni eða daglega, hvort sem fólk „veit betur“ eða ekki. Í almennum lögum og mannréttindasamningum kemur fram að allir eigi rétt á að hafa ferðafrelsi, lifa fjölskyldulífi, njóta heilbrigðisþjónustu og búa við friðhelgi og mannlega reisn. Hins vegar er mismunun gagnvart fötluðu fólki hér- lendis sem og víða erlendis svo hversdagsleg og sjálfsögð að Sameinuðu þjóðirnar fundu sig knúnar til þess að gefa út sáttmála árið 2006, sem verndar fatlað fólk sérstaklega og tryggir því mannréttindi. Almennir samningar duga ekki til. Ísland hefur undirritað sáttmálann en hvorki fullgilt hann né lögfest, sem þýðir að fatlað fólk getur illa nýtt sér hann til þess að vernda sig hér á landi. Sem er annað form af broti á mannréttindum í sjálfu sér. Það hljóta því allir að vera sam- mála um að það sé forgangsmál að fullgilda og lögfesta þann sáttmála. Það bjargar fötluðu fólki ekki frá þeirri undirokun sem það býr við en það er nauðsynlegt skref í þá átt að binda enda á umburðarlyndi gagnvart mismunun á grundvelli fötlunar og ýta undir að það verði hversdagslegt að vernda mannréttindi okkar en ekki brjóta þau. Í hversdagsleika mismununar Álit Freyja Haraldsdóttir Þingmaður Bjartrar framtíðar Deildu með umheiminum 01/01
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Kjarninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.