Kjarninn - 19.12.2013, Blaðsíða 32
03/07 kjarninn HEiLBRiGðiSMÁL
Útgjöld hins opinbera til heilbrigðismála segja okkur þó
ekki ýkja margt ein og sér, heldur væri gagnlegt að vita hvað
við erum að fá fyrir þessa peninga. Til þess er hægt að kafa í
fjöldatölur frá Landlæknisembættinu, sem mælir legudaga,
göngudeildarkomur, heimsóknir á heilsugæslu og fleiri
breytur.
Til að gera kostnaðartölur að einhverju leyti
samanburðar hæfar verður hér brugðið á það ráð að brjóta
heildarútgjöld á fjárlögum niður í kostnað á hvern legudag,
kostnað á hverja dag- eða göngudeildarkomu og kostnað á
hverja heimsókn eða símtal á heilsugæslu.
sjúkrahúsin
Samkvæmt upplýsingum frá hagdeild fjármálasviðs Land-
spítala er meðalkostnaður á legudag 138.974 krónur. Komur á
göngu- og dagdeildir eru mis dýrar,
frá 16.233 krónum á göngudeildir
og 33.181 krónu á bráðamóttöku
(fyrir þá sem útskrifast heim sama
dag), upp í 59.223 krónur á dag-
rannsóknar- og dagmeðferðar-
deildir og 132.879 krónur á dag-
skurðdeildir. Tölurnar gilda fyrir
tímabilið janúar til október 2013 og
innifela allan kostnað sem fellur til
í legu eða komu á deild, en þar er
meðtalinn meðferðarkostnaður og
kostnaður við stoðþjónustu.
Landlæknisembættið hefur tekið saman fjölda legudaga á
sjúkrahúsum landsins og voru þeir 252.780 árið 2012 sam-
kvæmt nýútkominni skýrslu „Legur, legudagar og meðal-
legutími á sjúkrahúsum 2003-2012“. Fjöldi lega var 42.546
og meðallegutími 5,9 dagar. Á sama tíma námu útgjöld til
spítala samkvæmt fjárlögum 42,4 milljörðum króna. Ekki eru
til alveg nýjar tölur yfir fjölda koma á göngu- og dagdeildir á
landsvísu, en þær voru 608 þúsund árið 2009.
dýrt
Samkvæmt upplýsingum
frá hagdeild fjármálasviðs
Landspítala er meðal-
kostnaður á legudag 138.974
krónur.