Kjarninn - 09.01.2014, Blaðsíða 67
02/03 kjarninn LÍFSStÍLL
Ceylon–kanill er oft kallaður „true cinnamon“ á ensku eða
hinn eini sanni kanill, en þar er vísað til latneska heitisins
verum. Í Bretlandi og Ástralíu er ekki leyfilegt að selja kanil
undir heitinu cinnamon nema þar sé á ferðinni ceylon–kanill,
aðrar tegundir af kanil eru einfaldega kallaðar cassia. Cassia–
kanill er sú tegund sem er langalgengust í verslunum, bæði í
Bandaríkjunum og Evrópu, en cassia–kanill er mikið ódýrari
en ceylon–kanill, sem getur verið allt að þrefalt dýrari.
Auðvelt er að greina tegundina af kanilstöngunum;
ceylon–kanill er ljósari, marglagskiptur og auðvelt er
að mylja stöngina með handafli. Cassia–kanilstangir
eru hins vegar dekkri, ekki lagskiptar og það harðar
að ekki er möguleiki að mylja þær með handafli.
En skiptir það einhverju máli hvaða tegund
af kanil er notuð? Samkvæmt Matvælaöryggis-
stofnun Evrópu skiptir það tölverðu máli. Cassia–
kanill inniheldur svokölluð kúmarínefni í tölverðu
magni, en samkvæmt viðmiðum matvælaöryggis-
stofnunarinnar er þolanleg dagleg inntaka (TDI,
tolerable daily intake) fyrir kúmarín 0,1 mg/kg
líkamsþyngdar á dag. Þó er talið í lagi að innbyrða
þrefalt þetta magn í 1-2 vikur án þess að það valdi
skaða. Rannsóknir á einangruðu kúmaríni hafa sýnt
að í stórum skömmtum getur það valdið blóðþynningu
og lifrarskaða og ýtt undir myndun krabbameinsfrumna.
Cassia–kanill (og einnig indónesískur og víetnamskur kanil)
inniheldur á bilinu 1.250-1.490 mg/kg af kúmaríni en ceylon–
kanill inniheldur hins vegar lítið sem ekkert magn af kúmar-
íni. Vert er þó að taka fram að rannsóknir hafa einnig dregið
í efa viðmið á þolanlegri daglegri inntöku á kúmaríni á þeim
forsendum að um sé að ræða áhrif kúmaríns sem einangraðs
efnis en ekki í neinum tengslum við önnur virk efni í jurtum
sem mögulega gætu dregið úr eituráhrifum kúmaríns.
viðvörun frá matvælastofnun
Í viðvörun frá Matvælastofnun fyrir ári er neytendum bent
á að nota cassia–kanil í hófi, sér í lagi fyrir börn. Stofnunin
Ceylon– og cassia–kanill
að ofan má sjá ceylon–kanil,
sem auðvelt er að aðgreina
frá cassia. ceylon er marg-
lagskiptur, ljósari og auðvelt
að mylja með handafli. cassia
er ekki lagskiptur og ekki
hægt að mylja með handafli.