Kjarninn - 30.01.2014, Blaðsíða 14
03/10 Húsnæðismál
mun umsvifameiri á íbúðamarkaði en talið hefur verið
Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu GAMMA Centrum á
sjóðurinn um 160 íbúðir sem eru í skamm- og langtímaleigu.
Samkvæmt rannsókn Kjarnans er GAMMA mun umsvifa-
meira á íbúðamarkaði en þessi tala gefur til kynna.
Kjarninn hefur upplýsingar um að sjóðir GAMMA eigi
um 350 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu, ríflega 190 fleiri íbúðir
en fullyrt er á heimasíðu félagsins. Samkvæmt upplýsingum
Kjarnans á GAMMA Centrum 120 íbúðir, sjóðurinn Eclipse
um sextíu íbúðir, sameignarfélagið V2-8 ríflega fimmtíu og
LL03, LL04 og LL05 svipaðan fjölda, en það eru sömuleiðis
sameignarfélög í eigu sjóða GAMMA eins og V2-8. Restin, um
sjötíu íbúðir, er í eigu annarra sjóða á vegum GAMMA.
Engir ársreikningar eru til um ofangreinda sjóði og upplýs-
ingar um hluthafa þeirra eru á huldu. Þeir eru allir með heim-
ilisfesti að Klapparstíg 29, þar sem GAMMA er til húsa, en þess
má geta að 121 félag er skráð til heimilis þar, þar af 51 virkt.
miðborgin vinsælust
Sjóðir á vegum Gamma hafa
sankað að sér íbúðum mið-
svæðis í Reykjavík á síðustu
misserum, enda gera spár
ráð fyrir að þar verði ekkert
lát á eftirspurn eftir íbúðum
og verð á þeim muni fara ört
hækkandi á næstu árum.
Mynd: Birgir Þór