Kjarninn - 30.01.2014, Blaðsíða 21
10/10 Húsnæðismál
viðskiptum GAMMA hækkar þannig íbúðaverð á svæðinu,
sem eykur samhliða verðgildi allra eigna sjóða félagsins
og þar með ávöxtun sjóðsfélaga. Þá er beinlínis hægt að
halda því fram að það hafi verið hagur GAMMA að kaupa
einstaka eftirsóttar íbúðir á yfirverði í þessu sambandi, eins
og heimildar menn Kjarnans innan úr fasteignageiranum
fullyrða.
Velta verður fyrir sér hvort það þyki eðlilegt að stórir
aðilar geti haft jafn mikil áhrif á jafn sveiflukenndan
markað. Þá má sömuleiðis velta því fyrir sér hvort það sé
viðeigandi að lífeyrissjóðirnir séu að fjármagna jafn stórtæk
fasteignakaup, með tilheyrandi hækkun fasteignaverðs og
ekki síður verðbólgu sem hefur áhrif á leiguverð og hefur
beinar afleiðingar á verðtryggðar eignir lífeyrissjóðanna.
Svo ekki sé talað um álitaefnið hvort lífeyrissjóðirnir eigi yfir
höfuð að taka þátt í stórtækri spákaupmennsku varðandi
íbúðaverð með almannafé, sérstaklega í ljósi þess að stór
fasteignafélög fóru halloka í hruninu.
Þá er engin lausn í sjónmáli varðandi holskeflu nýrra
fasteigna kaupenda, hvernig eigi að aðstoða þá við að koma
sér þaki yfir höfuðið, sér í lagi vegna ört hækkandi leigu- og
fasteignaverðs, og þess hlutfalls sem lánastofnanir krefjast
til útborgunar við fasteignakaup. Hvernig á einstaklingur að
geta safnað sér milljónum króna til fasteignakaupa þegar það
verður bara dýrara og dýrara að draga fram lífið, leigja íbúð
eða kaupa, án þess að hafa djúpa vasa til að seilast ofan í?