Kjarninn - 30.01.2014, Blaðsíða 58
02/04 tæKni
lífsstílsmælar sem mæla allar hreyfingar, svefnmynstur og
flest önnur lífsmörk, ásamt auðvitað hálsbandi fyrir hunda,
voru kynnt á CES þetta árið. Af öllu því sem kynnt var má
fyrst nefna Pebble Steel, uppfærða útgáfu af snjall úrinu
vinsæla Pebble sem virkar bæði á iOS og Android. Svo er
Razer Nabu, sem sameinar snjallúrið og lífsstílsmælinn í
eitt armband. Sony SmartBand er líka áhugavert, en Sony
hefur áður gefið út tvær útgáfur af snjallúrinu sínu sem
kallast SmartWatch. LG kynnti armband-snjallúr sem kallast
Lifeband Touch. Jaybird Reign
er lífsstílsmælir sem fylgist með
hreyfingum þínum en minnir þig
líka á að hreyfa þig meira ef þess
þarf og hvenær þú þarft lengri
nætursvefn.
Þó að öll þessi klæðanlega
tækni hafi verið kynnt er ekki
mikið um nýjungar, því þessi úr
og armbönd bæta engu við það
sem fyrir er á markaðnum. Hér
virðast allir telja skipta mestu að
taka þátt.
steambox að koma
Intel kynnti spennandi nýjung
sem kallast Edison og er á stærð
við SD-minniskort. Edison er
smátölva sem keyrir á tvíkjarna
Quark-örgjörva og styður þráðlaus net og Blue tooth. Intel
hugsar Edison ekki fyrir smásölumarkað heldur sem farar-
tæki fyrir aðra framleiðendur að láta ljós sitt skína á öflugum
og sterkum grunni. Ein hugmyndin sem Intel sýndi með
Edison í aðalhlutverki var vatnshelt þroska leikfang sem
tengist nemum á ungbarnasamfellu sem fylgist síðan með
öllum lífsmörkum barnsins.
Tölvuleikjaframleiðandinn Valve kynnti Steambox, tölvu
sem keyrir á SteamOS sem byggir á Linux. Valve keyrir þarna
razer nabu
Armbandið sameinar í raun
snjallúrið og lífsstílsmælinn í
einn hlut.