Kjarninn - 30.01.2014, Blaðsíða 62
02/03 lÍfsstÍll
bólgueyðandi, verkjastillandi, vöðvaslakandi og bakteríu-
drepandi og er talinn góður við eftirfarandi kvillum:
Q uppþembu, ristilkrampa, vindverkjum, sýkingum í
meltingarvegi og matareitrunum
Q morgunógleði, bílveiki, sjóveiki, ógleði eftir skurð aðgerðir
og vegna krabbameinslyfja
Q hósta, hálsbólgu, kvefi, flensu, astma og hand- og fótkulda
Q liðverkjum og gigtarsjúkdómum
Q tíðaverkjum og mígreni
Í kínverskum grasalækningum er gerður greinar munur
á virkni engifers eftir því hvort hann er þurrkaður eða
ferskur. Þurrkaður engifer þykir betri fyrir liðverki, ógleði
og vindverki ásamt því að örva blóðflæði
en ferskur engifer er talinn betri við hósta,
kvefi og flensu og sýkingum í meltingarvegi.
Í grasalækningum er sjaldnast unnið með
eina jurt í einu heldur er nokkrum tegundum
jurta blandað saman til að ná fram sem
mestum áhrifum. Það hefur lengi verið þekkt
að engifer ýtir undir virkni annarra jurta,
meðal annars með því að örva blóðflæði, en
talið er að engifer sé í allt að helmingi allra
kínverskra jurtaformúlna.
rannsóknir á engifer
Rannsóknir á samtals 415 konum hafa stað-
fest að engifer dregur umtalsvert úr tíða-
verkjum en sumar þessara rannsókna sýndu
að engifer var jafn áhrifaríkur og hefðbundin
verkjalyf. Einnig hafa nokkrar rannsóknir sýnt verkjastill-
andi og bólgueyðandi áhrif engifers við liðverkjum, sérstak-
lega slitgigt, og að auki hafa rannsóknir leitt í ljós að hann
dregur úr verkjum tengdum mígreniköstum. Í kínverskum
heimildum er varað við notkun engifers á meðgöngu en
klínískar rannsóknir á yfir 900 konum sem tóku 1.000-2.000
mg af engifer á dag hafa ekki leitt í ljós nein skaðleg áhrif,
Engiferte
við kvefi og flensu
Q ½ dl af ferskum engifersafa
Q safi úr ½ sítrónu eða límónu
Q hnífsoddur af cayenne-pipar
Q lífrænt hunang eftir smekk
Pressið safa úr stórri engiferrót í safapressu.
Setjið engifersafa í stóran bolla og hellið heitu
vatni á. Bætið sítrónusafa og cayenne-pipar við
og sætið með hunangi eftir smekk.
Drekkið 4-6 bolla á dag. Ef ekki er til safa-
pressa saxið smátt eða rífið 7-10 cm af rótinni
í bolla og hellið heitu vatni á. Látið standa með
loki yfir í klst. áður en sítrónu, cayenne-pipar og
hunangi er bætt við og drukkið. Ferskur engifer-
safi geymist auðveldlega í ísskáp í nokkra daga.