Kjarninn - 30.01.2014, Blaðsíða 80
02/04 VÍsinDi
milljarðamæringur. Hann er í 61. sæti Forbes yfir 400 rík-
asta fólk Bandaríkjanna, með auð upp á rúma sex milljarða
dollara.
7YIU¡VNLOLQQõPPEDUQDID°LU
Elon Musk fæddist í Pretoríu í Suður-Afríku árið 1971. Sautján
ára gamall flutti hann til Kanada og hélt fjórum árum síðar
í háskólanám til Bandaríkjanna. Þar sótti hann sér tvær
háskóla gráður frá Pennsylvaníu-háskóla, fyrst í viðskipta-
fræði og síðan í eðlisfræði.
Eftir grunnnám skráði Musk sig í doktorsnám í hagnýtri
eðlisfræði við Stanford-háskóla í Kaliforníu en hætti eftir
tveggja ára nám til að helga sig því sem átti
hug hans allan: Internetinu, endurnýjan-
legri orku og geimrannsóknum.
Musk er tvífráskilinn fimm barna
faðir sem varð milljónamæringur árið
1999 þegar Compaq-tölvufyrirtækið keypti
hugbúnaðarfyrirtækið Zip2 sem hann og
bróðir hans höfðu stofnað. Eftir það setti
hann annað fyrirtæki á laggirnar, X.com,
sem síðar sameinaðist öðru fyrirtæki
undir nafninu PayPal. Árið 2002 keypti eBay PayPal fyrir 1,5
milljarða Bandaríkjadala en í stað þess að setjast í helgan
stein notaði Musk hagnaðinn af sölunni til að stofna tvö
önnur fyrirtæki: Tesla Motors og SpaceX.
Hjálparbeiðni frá nasa
Á undanförnum árum hafa milljarðamæringar eins og Paul
Allen og Richard Branson stofnað fyrirtæki með það mark-
mið að koma ferðalöngum í nokkurra mínútna langar ferðir
upp fyrir 100 km mörkin þar sem geimurinn tekur við.
Sýn Musks er gerólík. Í stað örstuttra geimferða í eld-
flaugaknúnum flugvélum vildi hann smíða einfaldar og
tiltölulega ódýrar, endurnýjanlegar eldflaugar til að koma
bæði mönnum og farmi á braut um jörðina og lengra. Svo
heppilega vildi til að um svipað leyti tilkynnti George W.
„Sýn Musks er gerólík. Í stað
örstuttra geimferða í eld-
flaugaknúnum flugvélum
vildi hann smíða einfaldar
og tiltölulega ódýrar, endur-
nýjanlegar eldflaugar … “