Kjarninn - 30.01.2014, Blaðsíða 81
03/04 VÍsinDi
Bush, þáverandi Bandaríkjaforseti, að geimferjuáætlunin
yrði lögð niður í kringum árið 2010 og að NASA þyrfti að
finna nýjar leiðir til að komast út í geiminn. Árið 2006 hóf
stofnunin þróun á nýjum eldflaugum en vegna fjárskorts var
hætt við smíði þeirra. Stofnunin reri því á mið einka aðila til
að flytja menn og búnað til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar.
Í desember 2009 fékk Musk góða jólagjöf þegar NASA
veitti SpaceX og öðru einkafyrirtæki, Orbital Sciences, samn-
ing upp á að minnsta kosti tólf birgðaferðir til Alþjóðlegu
geimstöðvarinnar milli áranna 2012 og 2015, með möguleika
£IOHLULIHU²XPŠKXJVDQOHJDP¸QQX²XPŠHIUH\QVOD1$6$
af einkaframtakinu yrði góð. Samningur NASA við SpaceX
hljóðaði upp á allt að 3,1 milljarð dollara.
fálkar, dreki og engispretta
Á sjö árum hannaði SpaceX Falcon-burðarflaugar og Dragon-
geimskipið. Í september 2009 flutti SpaceX gervitungl á braut
á Tesla motors og SpaceX
Musk ákvað að nota hagnað-
inn af uppfinningum sínum til
að stofna tvö fyrirtæki, sem
nú eru leiðandi hvort á sínu
sviði. Það eru Tesla Motors,
sem framleiðir rafknúna bíla,
og SpaceX, sem vinnur nú að
fullkomnun tækninnar við
að flytja birgðir og fólk út í
geiminn.