Kjarninn - 30.01.2014, Blaðsíða 82
04/04 VÍsinDi
um jörðina með Falcon 1-eldflaug og varð þá fyrsta einka-
fyrirtækið til þess.
Ári síðar fór stærri burðarflaug, Falcon 9, í jómfrúarferð
sína, en hún er nú aðaleldflaug SpaceX. Í maí 2012 var Falcon
9 skotið á loft í þriðja sinn. Þá flutti Dragon-geimskip fyrir-
tækisins birgðir til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar og var það í
fyrsta sinn sem einkaaðili gerði það.
Eldflaugar SpaceX hafa reynst áreiðanlegar og eru bjartir
tímar fram undan hjá fyrirtækinu. Á árinu mun SpaceX
skjóta á loft þremur Dragon-birgðaförum til geimstöðvar-
innar og nokkrum gervitunglum fyrir einkaaðila og ríki, þar
á meðal Turkmensat 1, fyrsta gervitungli Túrkmena.
Árið 2014 er einnig fyrirhugað fyrsta tilraunaflug Falcon
Heavy-eldflaugarinnar, en hún verður öflugasta eldflaug
heims, fær um að koma 53 tonnum á braut um jörðina eða 16
tonnum til tunglsins og 14 tonnum til Mars. Aðeins Satúrnus
5-tunglflaug Bandaríkjamanna hefur haft meiri burðargetu,
en kostnaður við Falcon Heavy verður miklu lægri.
Á sama tíma heldur þróun á Dragon-geimskipinu áfram
svo hægt sé að senda menn með því til og frá alþjóðlegu
geimstöðinni í desember 2015.
Síðustu ár hefur endurnýjanleg eldflaug, Grasshopper,
verið í þróun hjá SpaceX. Sú flaug á að takast á loft og lenda
aftur í heilu lagi á skotpallinum. Sjón er sögu ríkari.
Vil bera beinin á marS
Elon Musk lítur á geimrannsóknir sem nauðsyn-
legt þróunarskref fyrir mannkynið. „Fyrr eða síðar
verðum við að færa lífið út fyrir þennan græna og
bláa hnött — eða deyja út,“ skrifaði hann í Esquire
tímaritið árið 2008.
„Fyrir mér er lykilatriðið að þróa tækni til að
flytja fjölda fólks og búnað til Mars,“ sagði Musk í
viðtali við Guardian árið 2013. Þar sér hann fyrir sér
að menn muni nema land innan tveggja áratuga. Þar
vill Musk bera beinin. Og sannast sagna er það alls
ekki svo fjarstæðukennt.
ÍtarEfni
+HLPDV¯²D6SDFH;
Spacex.com
Elon Musk á Twitter
Opinber Twitter-straumur Musk
SpaceX á Twitter
Opinber Twitter-straumur SpaceX
Smelltu á fyrirsagnirnar
til að lesa ítarefnið