Kjarninn - 20.02.2014, Blaðsíða 5
02/03 leiðari
með typpin sín og stelpurnar með rassana sína að framan.
Pabbi frænku minnar áttaði sig á því hvernig í pottinn er
búið á leikskólanum þegar verið var að skipta á litla bróður
hennar um daginn. Þá þekkti hún typpi í sjón en hafði fram
að því einvörðungu talað um rassinn á sér. Hún veit í dag að
rassinn er bara að aftan.
Ég get ómögulega skilið hvernig það er merkilegra eða
mikilvægara að strákar séu fremur en stúlkur upplýstir um
hvað kynfærin þeirra heita. Ég hreinlega trúi því ekki að það
sé ennþá meira feimnismál
að segja orðið píka en typpi.
Þurfa strákar í alvöru frekar
á því að halda að þeir átti
sig fyrr á því en stelpur að
þeir séu strákar? Einhverra
hluta vegna, og á einhverjum tíma, urðu typpi minna tabú en
píkur. Förum nú að hætta þessari vitleysu.
Kjarninn fjallar í dag um hversu ótrúlega mikið hallar á
hlut kvenna í stjórnum helstu fjármálafyrirtækja landsins,
lífeyrissjóða og annarra umsvifamikilla fyrirtækja sem fara
með fjárfestingar á Íslandi. Niðurstöðurnar eru vægast sagt
sláandi og um leið áfellisdómur yfir okkur sem þjóð. Af þeim
88 fyrirtækjum og sjóðum sem voru undir í skoðun Kjarnans
var 82 stýrt af körlum, eða í 93 prósentum tilfella. Hlutur
kvenna í áhrifamestu félögum landsins er sem sagt smánar-
lega rýr.
Því er ekki að neita að töluvert hefur áunnist í jafnréttis-
baráttunni á undanförnum árum, og hver skýrslan á fætur
annarri frá útlenskum skammstöfunum básúnar reglulega
hvað við Íslendingar stöndum framarlega í þessum efnum.
En þessi staða er auðvitað til háborinnar skammar.
Vera Sölvadóttir fjölmiðlakona skrifaði grein á dögunum
um hvernig dónakallar hafa ítrekað áreitt hana í gegnum
tíðina. Greinin var frábær en lestur hennar var hræðilegur.
Veru hefur verið boðinn peningur fyrir að horfa á menn
runka sér, menn hafa berað sig fyrir framan hana óumbeðnir
og mýmargir ógeðsmenn hafa gripið í klof hennar, brjóst og
„Einhverra hluta vegna, og á
einhverjum tíma, urðu typpi
minna tabú en píkur.“