Kjarninn - 20.02.2014, Blaðsíða 87
06/07 menning
Karakterarnir eru ekki öfgafullar útgáfur af unglingum.
Nei, bara alls ekki. Ég hélt alltaf að Mikki myndi frekar
aðhyllast það að við myndum sýna aðalpersónuna okkar
Arnald sem ofbeldisfullan, snarbilaðan, útúrruglaðan dreng.
En hann virtist vera fyllilega sammála því að við einbeitt-
um okkur meira að skilaboðum
bókarinnar, að þau fengju að skína
í gegn. Það er þetta samskiptaleysi,
sem er orðið eitthvað svo áberandi
í lífi okkar í dag. Foreldrar, ung-
lingar, skólakerfið: hvernig þetta
allt komið inn í einhver „box“.
Það talar orðið enginn við annan,
bara maður á mann. Face to face.
„Svona eru hlutirnir, þetta er að
gerast.“
rosalega erfitt að vinna með
óreyndum leikurum
Þú hlýtur að hafa heyrt mikið um
hversu vel myndin lítur út miðað við
hvað hún kostaði lítið?
Já. Ég er nú samt þeirrar
skoðunar að mynd verður ekkert
betri, ef hún er gerð fyrir lítinn
pening en tekst samt að líta vel út.
Þá finnst mér ekkert að myndin
eigi það meira skilið að fá áhorf.
Auðvitað er það alltaf bara sagan
sem á að höfða til þín og vera
skemmtileg og góð. Þá fer fólk og
sér myndina. En ég held að þessi
reynsla sem við höfðum hafi líka hjálpað. Tökumaður, bún-
ingar, smink. Þetta fólk er allt þjakað af reynslu (hlær).
Hvernig fannst þér að vinna með óreyndum leikurum?
Rosalega erfitt. Þetta er mín fyrsta mynd. Það eitt að
takast á við að vinna með leikurum, og kafa ofan í handritið
boðskapurinn réð ferðinni
Aðalpersónan er ekki endilega
aðeins sýnd sem klikkuð
heldur einbeita framleið-
endurnir sér að því að koma
skilaboðum bókarinnar á
framfæri.