Kjarninn - 20.03.2014, Blaðsíða 14
03/05 upplýSingatÆkni
pappírsnotkun þá sérstaklega, sem hafa skýran snertiflöt við
tæknilegar framfarir þegar kemur að miðlun á upplýsingum.
Þetta á ekki síst við um þjónustu hjá hinu opinbera og allt
sem að henni snýr, svo sem dreifingu á upplýsingum af ýmsu
tagi.
Internetið er fyrir löngu farið að marka daglegt líf fólks
með margvíslegum hætti. Þjónusta af ýmsu tagi er í boði í
gegnum internetið og það er nýtilegt til sífellt fleiri hluta.
En áhrifin sem hin stafræna bylting, eins og snjallsíma- og
spjaldtölvuvæðingin er oft nefnd, getur dýpkað þessi áhrif
enn meira. Blaðamaðurinn Michael Joseph Gross, sem skrifar
í Vanity Fair, sagði grein í maíútgáfu tímaritsins árið 2012 að
næsta heimsstyrjöld færi fram á internetinu. Fyrirsögnin á
grein hans, World War 3.0, var skírskotun í þessa merkilegu
tíma, þar sem barist verður um upplýsingar og völd sem þeim
fylgja.
Snjallvæðing
Upplýsingum er nú miðlað
í gegnum snjallsíma og
spjaldtölvur um leið og
hlutirnir gerast. Hér má sjá
fréttir frá Ólympíuleikunum
í Sotsí í norskum fjölmiðlum
í ýmsum snjalltækjum, en
Norðmenn eru oft sigursælir í
vetraríþróttum.