Kjarninn - 20.03.2014, Blaðsíða 16
05/05 upplýSingatÆkni
Í sömu hlutföllum gætu sparast nokkur hundruð milljónir
hér á landi á ári, með viðlíka stefnubreytingu. Nú þegar
hafa verið stigin stór skref sem hafa heppnast vel, meðal
annars hjá skattayfirvöldum. Vel hugsanlegt er að sparnaður
verði margfaldur sá er stefnt er að, samkvæmt upplýsingum
frá breskum stjórnvöldum. Stefnan hefur verið sett fram í
uppfærðu skjali á vefnum, sem hefur verið uppfært sextán
sinnum, allt fyrir opnum tjöldum. Sérstaklega er horft til
þess að gera alla opinbera þjónustu miðlæga í gegnum
vefsíðu og draga um leið stórkostlega úr allri umsýslu með
pappír hjá hinu opinbera.
Einkageirinn er almennt mun lengra kominn hvað þessi
mál varðar en hið opinbera, víðast hvar á alþjóðavettvangi,
og er þróunin hvað flesta þjónustuþætti varðar afar hröð.
tækifæri á íslandi
Sigurjón Ólafsson, ráðgjafi hjá Fúnksjón vefráðgjöf, segir
mikil tækifæri geta falist í því fyrir hið opinbera á Íslandi að
huga meira að stafrænum leiðum þegar kemur að þjónustu
og upplýsingagjöf. Ekki sé aðeins um sparnað að ræða heldur
geti þjónustan einnig orðið mun betri og skilvirkari til
framtíðar litið. Ísland standi líka frammi fyrir þeim veruleika
að vera nýjungagjörn þjóð sem nýti sér nýjustu tækni í
meiri mæli en flestar aðrar þjóðir. Fyrir vikið geti enn meiri
útvíkun stafrænnar þjónustu og pappírslausrar upplýsinga-
gjafar haft enn meiri áhrif hér á landi.
ítarefni
Stafræn stefna breskra
stjórnvalda
Vefsíða The Government Digital
Strategy
Stefnumarkandi skref
sem stigin hafa verið
224 stefnumarkandi skref hafa
verið stigin
Smelltu á fyrirsagnirnar
til að lesa ítarefnið