Kjarninn - 17.04.2014, Side 25

Kjarninn - 17.04.2014, Side 25
grEining Skýrsla rannsóknarnefndar um sparisjóðina markaðs misnotkun, innherjabrot og umboðssvik 01/04 GreininG kjarninn 27. mars 2014 f jórir stærstu sparisjóðir landsins: SPRON, Byr og Sparisjóðirnir í Keflavík og Mýrasýslu, höguðu sér að mörgu leyti meira eins og fjárfestingarfélög en sparisjóðir. Þau voru undir hælnum á stærri bönkum eða ákveðnum viðskiptamannahópum og fjármögnuðu oft á tíðum gjörninga sem stóru bankarnir annaðhvort vildu ekki eða gátu ekki, sökum hámarksútlána til ákveðinna aðila, fjármagnað. Kjarnastarfsemi þeirra var ónýt, vaxtamunur lítill eða enginn og sumum þeirra tókst meira að segja ekki að hagnast á því að lána út verðtryggð íbúðalán. Lán voru veitt án nægjanlegra trygginga og lánað var til stofnfjárkaupa með veði í bréfunum sjálfum, sem er andstætt lögum. Í stað þess að þjónustutekjur og vaxtamunur inn- og útlána einkenndi rekstur sjóðanna fyrir bankahrun var uppi- staðan í vexti og hagnaði þeirra nánast einvörðungu útlán sem orka í besta falli tvímælis og gríðarlega áhættusamar fjárfestingar í verðbréfum. Auk þess tóku þeir oft á tíðum þátt í fjárfestingarstarfsemi sem skilaði miklu tapi. SPRON grEining Þórður Snær Júlíusson L @thordursnaer 01/04 grEining

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.