Kjarninn - 17.04.2014, Blaðsíða 28
03/04 grEining
stærsta eiganda bankans. Þegar Kaupþing og Exista féllu var
ljóst að sjóðirnir þrír væru komnir í vanda sem þeir gætu
ekki yfirstigið. Byr batt sig við hóp sem tengdist stærstu
eigendum Glitnis, Baugi og fylgihnöttum, og lánaði honum
risavaxnar fjárhæðir. Engar viðskiptalegar forsendur geta
talist fyrir sumum þeirra lánveitinga og eru þær til rann-
sóknar hjá embætti sérstaks saksóknara.
Alls tilkynnti rannsóknarnefnd um sparisjóðina 21 mál til
ríkissaksóknara. Hann á síðan að vísa þeim áfram til þar til
bærra embætta. Þau eru sérstakur saksóknari og eftir atvik-
um Fjármálaeftirlitið. Auk þess rann sakar embætti sérstaks
saksóknara nú þegar um tíu mál sem tengjast þeim. Hluti
þeirra mála snýr að Sparisjóðnum í Keflavík og er meðal
annars byggður á leyniskýrslu endurskoðunar fyrirtækisins
PwC um sjóðinn sem skilað var í apríl 2011 og Kjarninn birti
í heild sinni í fyrstu útgáfu sinni, 22. ágúst 2013. Hana má
nálgast hér.
Heimildir Kjarnans herma að nánast öll þessi mál tengist
stærstu fjórum sjóðunum. Þau mál sem vísað var til ríkis-
saksóknara eru margs konar. Þau snúast meðal annars um
meinta markaðsmisnotkun og innherja- og umboðssvik.
hluti málanna fyrndur
Hluti málanna fellur hins vegar undir sérrefsilög, ekki
hegningar lög. Ef refsirammi þeirra er undir tveggja ára
fangelsi geta slík mál fyrnst á fimm árum. Samkvæmt heim-
ildum Kjarnans á það við um hluta þeirra mála sem rann-
sóknarnefndin vísaði til ríkissaksóknara að þau eru fyrnd.
Rannsókn málsins gæti hins vegar leitt til þess að viðeigandi
embætti færðu sum brotanna undir hegningarlög sem eru
ekki þar núna.
Eitt vandamál blasir hins vegar við. Fjármálaeftirlitið
hætti hrunrannsóknum í byrjun árs 2013. Þótt innan
embættisins sé enn starfandi sérstakur rannsóknarhópur
innan vettvangs- og verðbréfaeftirlits er geta þess til að
takast á við stórtækar rannsóknir mjög skert.
Þetta skiptir miklu máli, til dæmis varðandi rannsóknir
„Samkvæmt
heimildum Kjarn-
ans á það við
um hluta þeirra
mála sem rann-
sóknarnefndin
vísaði til ríkis-
saksóknara að
þau eru fyrnd.“