Kjarninn - 08.05.2014, Blaðsíða 82
69/70 menning
Eyjólfsson, Erlingur Gíslason, Pétur Einarsson, Arnar Jónsson
og Sigurður Skúlason, fara með aðalhlutverkin og kryfja
verkið til mergjar. Hitt verkið er SAGA Wakka Wakka-leik-
hópsins, brúðuleikhús sem fjallar á grátbroslegan hátt um
Íslendingasögu, sögu Gunnars Oddmundssonar, sem lenti
illa í hruninu 2008 og dreymir um réttlæti. Verkið Der Klang
der Offenbarung des Göttlichen eftir þá Kjartan Ragnarsson
myndlistarmann og Kjartan Sveinsson tónlistarmann verður
sýnt í Borgarleikhúsinu, en verkið, sem er leikhús án leikara,
var frumsýnt í Volksbühne-leikhúsinu í Berlín í febrúar á
þessu ári.
Nýjasta verk Matthew Barney, River of
Fundament, er sex klukkustunda löng kvik-
mynd sem byggð er á skáldverki Normans
Mailer, Ancient Evenings. Verkið tók sjö ár í
vinnslu, en myndina vann Barney í samstarfi
við tónskáldið Jonathan Bepler. Myndin
verður sýnd aðeins einu sinni á Listahátíð í
Laugarásbíói.
„Opnunaratriði hátíðar-
innar er nýtt verk, Turyia,
eftir Högna Egilsson,
pantað sérstaklega af
listahátíð í Reykjavík.“
listamannaspjall
Franski rithöfundurinn
Michel Butor mun spjalla
við gesti hátíðarinnar í
Þjóðarbókhlöðunni.