Kjarninn - 08.05.2014, Blaðsíða 83
70/70 menning
myndlistarsýningar og hljóðgöngur
Myndlistarsýningar verða opnaðar víðs vegar um borgina í
hinum ýmsu söfnum og galleríum út alla hátíðina. Þar má
nefna The Five Live Lo FI, í Kling og Bang, Spegil lífsins,
sýningu Ragnars Axelssonar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur,
Hringiðu, sýningu sex listamanna í Listasafni Árnesinga
í Hveragerði, Kortlagninu lands, sýningu Hildar Bjarna-
dóttur í Hverfisgalleríi, Lusus naturae í Hafnarborg og Í
þínar hendur, vinnustofu listamanna, hönnuða og tölvunar-
fræðinga í Spark Design þar sem þrívíð prenttækni kemur
við sögu. Á sýningunni Píanó í Listasafni Íslands verður
hljóðfærið skoðað í samfélagi nútímans, en fjölmargir
listamenn úr ýmsum geirum eiga verk á sýningunni. Sýningu
á verkum Hreins Friðfinnssonar og mynd um listamanninn
verður hægt að skoða í Nýlistasafninu og í Árbæjarsafni
verður opnuð sýning sem sækir innblástur í starfsemi Suður-
götu 7 á árunum 1977–1982.
Af öðrum viðburðum hátíðarinnar má nefna hljóðgöngu
hljóðlistarhópsins Innra eyra um Austurbæjarskóla, bókasýn-
ingu og listamannaspjall við franska rithöfundinn Michel Butor
í Þjóðarbókhlöðunni og síðast en ekki síst lokaverk hátíðar-
innar, Flugrákir, eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur. Í verkinu
munu tvær listflugvélar teikna form Guðseindarinnar yfir
Kollafirði og kórinn Katla túlkar ferðalag þeirra á jörðu niðri.
Hægt er að finna ítarlegar upplýsingar um dagskrána á
www.listahatid.is.
rúsínan í pylsuendanum
Lokaverk hátíðarinnar í ár
er Flugrákir eftir Ragnheiði
Hörpu Leifsdóttur.