Innsýn - 01.03.1987, Blaðsíða 12
ÁHRIF TÓNLISTAR
Á MANNINN AULAN
H-. LLCM) L€MO
ÁHRIF Á HUGANN
Með því að undir-
vitundin verður fyrir
áhrifum af tónlist er
auðvelt að gera sér í
hugarlund hvílíkt tæki hún
getur verið til að ná
stjórn á hugarfarinu.
Gitler segir að sál-
fræðingar hafi með
rannsóknum sínum sýnt
framá að takturinn sé
mikilvægur þáttur. "Rokk
hefur smjúgandi takt sem
verkar á frumþættina í
eðli áheyrendenda.^1
3ohn Philips í The Mamas
and the Papas uppgötvaði
við athugun og tilraunir
að vekja má uppþot og
hópsefjun "með því að
stilla nákæmlega takt-
röðina. . . . Við kunnum
að gera það. . .Allir
kunna að gera það."^
Time sagði: "í vissum
skilningi er allt rokk
bylting. Með takti sínum
og hljómum hefur það
skilyrðislaust varpað af
sér öllum hömlum og
upphafið frelsi og
kynlíf.
í bók sinni, The Day
Music Died, skrair Bob
Larson fjölda dæma um
notkun á rokkmúsik þar sem
hljómgerð hennar og textar
er notuð til að upphefja
anda stjórnleysis og
uppreisnar.
Einn hópur, Country Joe
and The Fish, eru uppvísir
að því að hafa hjálpað
Svörtu pardusunum og
SDS-samtökunum. Leikur
kvintetts í Detroit sem
nefnir sig MC5 fékk þessa
einkunn hjá fyrrverandi
umboðsmanni sínum: "MC5
eru frjáls, orkumikil
uppspretta sem á eftir að
gera okkur hömlulaus á
strætum Bandaríkjanna.
Larson vitnar líka í
tímaritið Hit Parader,
mars 1968, þar sem birtist
háðgrein um vald og áhrif
rokkhljómlistar: "Gerum
ráð fyrir að þú vildir ná
völdum í einhverju landi.
Þú gætir lagt landið undir
þig án þess að hleypa af
einu skoti. Notaðu
popptónlist. Segjum að þú
vildir ná Bandaríkjunum
undir þig. Byrjaðu með því
að hafa áhrif á unga og
áhrifagjarna hugi fram-
haldsskólanemenda. Þú
getur náð þeim með
ísmeygilegum áróðri gegnum
umboðsmenn þína á sviði
alþýðutónlistarinnar.
Fyrsta skrefið er að
syngja mótmælasöngva. Þeir
skapa sundurlyndi og afla
áhangenda.
Derry Rubin kemst að
þessari niðurstöðu um
samhengið á milli póli-
tískra framadrauma sinna
og hippalífstíls: "Við
höfum soðið saman nýja
vinstri pólitík og
skynvillulífsstíl.
Lífsstíll okkar- sýra,
sítt hár, fríkaður
fatnaður, hass, rokk,
sex--er byltingin. Tilvera
okkar gerir Ameríku að
athlægi."^
Með því að undirvitundin verður fyrir áhrifum af tónlist
er auðvelt að gera sér í hugarlund hvílíkt tæki hún getur
verið til að ná stjórn á hugarfarinu.
12