Hagtíðindi - 01.04.1939, Side 6
34
H AGTÍ Ð I ND I
1939
skattupphæðirnar þar nokkru hærri heldur en hér er talið, 1653 þús. kr.
árið 1937 og 2190 þús. kr. samkvæmt bráðabirgðayfirliti fyrir 1938.
Einstaklingar Félög Alls
1937 1938 1937 1938 1937 1938
Tekjuskattur
Tala skattgjaldenda 26 957 30 001 217 257 27 174 30 258
Þar af töldu fram 21 627 24 369 174 194 21 801 24 563
þús. kv. þús. kr. þús. kr. þús. kr. þús. kr. þús. kr.
Nettólekjur 66 396 76 096 1 514 2 389 67 910 78 485
Frádr. skv. 12. og 8. gr. skattl. 31 825 35 743 329 638 32 154 36 381
Skattskyldar tekjur 34 264 40 067 1 185 1 751 35 449 41 818
Skattar 1 364 1 542 176 259 1 540 1 801
Eignarskattur
Tala skattgjaldenda 7 307 7 632 173 200 7 480 7 832
Þar af töldu fram 6 668 7 119 156 177 6 824 7 296
Skuldlaus eign þús. kr. þús. kr. þús. kr. þús. kr. þús. kr. þús. kr.
113 137 118 827 10 997 12 787 124 134 131 614
Skattur 257 254 54 64 311 318
Tekju- og eignarskattur
Skattur samtals 1 621 1 796 230 323 1 851 2 119
Árið 1938 fjölgaði gjaldendum tekjuskatts um 11 °/o en skattgjald-
endum eignarskatts um 5 °/o. Flestir gjaldendur telja sjálfir fram tekjur
sínar og eignir, um 4/s af tekjuskattsgreiðendum og rúmlega 9/ío af eign-
arskattsgreiðendum.
Ártölin í yfirlitinu eiga við árin, þegar skafturinn hefur verið lagð-
ur á, en hann er lagður á tekjur næsta árs á undan, svo að tekjurnar,
sem tilfærðar eru hvert ár, eru tekjur þær, sem tilfallið hafa árið á undan.
Nettótekjur skattskyldra einstaklinga árið 1937, (sem skattur var lagður
á 1938), voru 76.1 milj. kr., og er það rúml. 15 °/o hærra heldur en næsta
ár á undan (1936), er þær töldust 66.4 milj. kr. Árið 1937 hafa líka
tekjur skattskyldra félaga hækkað upp í 2.4 milj, kr. úr 1.5 milj. kr. árið
1936. Samkv. 12. gr. tekjuskattslaganna frá 1935 skal draga frá nettó-
tekjum einstaklinga sem skattfrjálsa upphæð 6-800 kr. fyrir skattgjald-
anda sjálfan og jafnháa upphæð fyrir konu hans og 500 kr. fyrir hvert
barn innan 16 ára. Frá tekjum félaga dragast á sama hátt samkv. 8.
gr. tekjuskattslaganna 5 °/o af innborguðu hlutafé eða stofnfé, svo og
helmingur af ársarði, sem lagður er í varasjóð. Munurinn á nettótekjunum
og skattskyldum tekjum verður þó nokkru meiri, því að loknum þessum
frádrætti er slept því, sem afgangs verður, þegar tekjuupphæðinni er deilt
með 50. I skýrslum skattanefndanna eru nettótekjur félaga og frádráttur
samkv. 8. gr. tekjuskattslaganna aðeins tilfært í Reykjavík, en annarsstaðar
eru aðeins tilfærðar skattskyldu tekjurnar.