Hagtíðindi - 01.09.1939, Blaðsíða 1
HAGTÍÐINDI
GEFIN ÖT AF HAGSTOFU ÍSLANDS
2 4. árgangur
Nr. 9
September
1939
Smásöluverð í Reykjavík í september 1939.
Eftirfarandi yfirlit sýnir breytingar smásöluverðs í Reykjavík á mat-
vælum og á eldsneyti og ljósmeti samkvæmt áætlaðri notkun 5 manna
fjölskyldu. Vfirlitið sýnir hin áætluðu ársútgjöld á hverjum Iið samkvæmt
verðlaginu í byrjun septembermánaðar þ. á., 1. ágúst þ. á., fyrir ári síðan
og fyrir heimsstyrjöldina, og ennfremur með vísitölum, hve verðhækkunin
er hlutfallslega mikil á hverjum lið síðan 1914.
Utgjaldaupphæö (krónur) (júlí Vísitölur 1914 = 100)
]úlí Sept. Ágúst Sept. Sept. Ágúst Sept.
Matvörur: 1914 1938 1939 1939 1938 1939 1939
(BrauÖ 132.86 282.20 254.80 254.80 212 192 192
fKornvörur 70.87 110.98 110.15 110.39 157 155 156
Garðávextir og aldin 52.60 194.02 220.95 .144.30 369 420 274
Sykur 67.00 70.20 93.60 93.60 105 140 140
Kaffi o. fl 68.28 104.17 106.82 107.25 153 156 157
Smjör og feiti 147.41 247.37 255.19 255.32 168 173 173
Mjólk, osfur og egg 109.93 227.01 228.15 228.13 207 208 208
Kjöt og slátur 84.03 211.83 273.18 250.95 252 325 299
Fiskur 113.36 228.58 223.78 226.18 202 197 200
Matvörur alls 846.34 1676.26 1766.62 1670.92 198 209 197
Eldsneyti og ljósmeti 97.20 181.90 182.10 183.10 187 187 188
Smásöluverðskýrslurnar sýna, að 3 af matvöruflokkunum hafa hækkað
lítilsháttar frá 1. ágúst til 1. sept., og 4 hafa staðið í stað, en 2 hafa
lækkað töluvert (garðávextir og kjöt). Er það venjuleg árstíðarlækkun á
þeim vörum um þetta leyti. Aðalvísitala matvaranna hefur lækkað um 12
stig. Var hún 1 stigi lægri í byrjun septembermánaðar í ár heldur en á
sama tíma í fyrra.