Hagtíðindi - 01.10.1939, Blaðsíða 2
82
H AGTlÐ I N D I
1939
er til um þetta leyti árs. Hækkun sú, sem varð á sykri og brauðum í
októbermánuði þ. á., er hinsvegar ekki tekin hér með, því að miðað er
við verðlag í byrjun októbermánaðar.
Samkvæmt yfirlitinu ættu útgjöld slíkrar fjölskyldu, sem hér er mið-
að við (og áætluð voru 1800 kr. með verðlagi í júlí 1914), að hafa numið
4874 kr. miðað við verðlag í byrjun októberm. þ. á. En haustið 1938 var
tilsvarandi útgjaldaupphæð 4724 kr. Er hækkunin því rúmlega 3 °/o síðan
í fyrra haust. Árið áður var tæplega 2 °/o hækkun.
Matvöruútgjöldin í heild sinni, miðað við verðlag í októberbyrjun
1939, hafa hækkað um tæpl. 3 °/o síðan í októberbyrjun í fyrra. Stafar
sú hækkun af verðhækkun á sykri, smjörlíki og kornvörum.
Til eldsneytis og ljósmetis er talið aðallega kol, rafmagn og suðu-
gas. Þessi liður hefur hækkað um rúml. 6 °/o síðan í fyrrahaust vegna
verðhækkunar á kolum og rafmagni, en hinsvegar hefur gasverð lækkað.
Reynt hefur verið að taka nokkurt tillit til þess, að margir hafa tekið
upp notkun rafmagns í stað gass. Hefur því gasnotkunin í þessum reikn-
ingi verið lækkuð um helming, en rafmagn sett í staðinn. Verðhækkun
sú á kolum, sem varð í októbermánuði þ. á. er hér ekki talin með, þar sem
miðað er við mánaðarbyrjun, og þá heldur ekki hækkunin á rafmagninu
í haust, því að hún kemur ekki til framkvæmda fyr en í byrjun nóvem-
bermánaðar.
Um verðbreytingar á fatnaði og skófatnaði er bygt á upplýsingum
frá nokkrum verslunum í Reykjavik. Eru þær upplýsingar nú orðnar meiri
en áður vegna þess, að út af gengisbreytingarlögunum í aprílmán. síð-
astliðnum var tekið að safna mánaðarlegum upplýsingum um verð á fatn-
aðarvörum hjá allmörgum verslunum í Reykjavík. Þó veldur það nokkr-
um erfiðleikum um ákvörðun verðhækkunar á þessum vörum, að sumar
þær vörur, sem mest voru notaðar áður, eru orðnar lítt fáanlegar eða
alls ekki, og úrval er yfirleitt lítið, svo að erfitt er að fá áreiðanlegt
meðalverð fyrir allan bæinn. Hefur fatnaðarliðurinn hækkað alls um tæpl.
6 o/o síðan í fyrra haust. Undir þessum lið hefur áður verið talið sápa
og sódi, en þetta hefur nú verið flutt undir liðinn »önnur útgjöld*.
Húsnæðisliðurinn hefur verið bygður á upplýsingum um húsaleigu
í Reykjavík fyrir þriggja herbergja íbúðir, síðast árið 1930, en breyfingu bygg-
ingarkostnaður síðan. Fyrir síðasta ár er þó ekki gert ráð fyrir neinni
hækkun, því að í gengisbreytingarlögunum var bannað að hækka húsa-
leiguna, en samkvæmt upplýsingum frá húsameistara ríkisins hefur bygg-
ingarkostnaður í ár, fram að stríðsbyrjun, verið rúml. 6 °/o hærri heldur en
í fyrra. Húsaleiguhækkunin síðan 1914 mun ekki eingöngu vera verð-
hækkun, heldur einnig að nokkru leyti viðbótargreiðsla fyrir meiri þæg-
indi og betra húsnæði. Það virðist líka svo sem þessi liður í vísitölu-